Læknaneminn - 01.04.2022, Síða 46
LÆKNANEMINN44
hnénu en heldur sköflungnum ennþá þannig að hann snúi inn. Þetta er til þess að prófa
hliðlægan liðþófa. Til þess að prófa miðlægan liðþófa er það sama gert nema sköflungnum
snúið út (lateral rotation). Gott er að endurtaka þetta nokkrum sinnum. Ef sjúklingurinn
finnur sársaukafullt „klikk“ í réttingu er prófið jákvætt.
Mynd 7. McMurray próf fyrir miðlægan liðþófa
Mynd 8. McMurray próf fyrir hliðlægan liðþófa
Thessaly próf
Annað próf til að meta rifinn liðþófa. Skoðandi stendur á móti sjúkling og heldur í
hendurnar á honum. Sjúklingurinn stendur síðan á öðrum fæti með hnéð beygt í 20° og
snýr sér til beggja hliða nokkrum sinnum. Prófið er jákvætt ef sjúklingur finnur til eða ef
hnéð læsist.Mikilvægt er að bera saman við hitt hnéð.
Mynd 9: Thessaly próf
Sundboltapróf
Til að prófa fyrir vökva í hnénu er hægt að
nota „sundboltaprófið.“ Þá heldur skoðandi
um hnéð með báðum höndum og þrýstir
lið vökvanum inn að miðju hnénu, og
notar síðan vísifingur til þess að ýta ofan
á hnéskelina. Ef tilfinningin er eins og sé
verið að ýta sundbolta ofan í vatn (ýta hné
skelinni ofan í vökva) þá er prófið jákvætt.
Heimildir
1. Beutler, AB, Alexander, AA. (2020).
Physical examination of the
knee. UpToDate. Fengið þann 07/04/2022
af https://www.uptodate.com/contents/
physicalexaminationoftheknee
2. Deveza, LAD, Bennell, KB.
(2022). Management of knee
osteoarthritis. UpToDate. Fengið þann
07/04/2022 af https://www.uptodate.
com/contents/managementofknee
osteoarthritis
3. Cardone, DAC, Jacobs, BCJ. (2021).
Meniscal injury of the knee. UpToDate.
Fengið þann 07/04/2022 af https://www.
uptodate.com/contents/meniscal
injuryoftheknee
4. Lubowitz, JHL, Bernardini, BJB, Reid,
JBR (2008). Comprehensive Physical
Examination for Instability of the Knee.
The American Journal of Sports Medicine, 36(3)
5. Íðorðaskrá lækna (https://idordabanki.
arnastofnun.is/)
Heimildaskrá mynda
Myndir 16: John B. Reid, Comprehensive
Physical Examination for Instability of
the Knee
Myndir 78: McMurray test, osmosis
Mynd 9: Thessaly test, lecturio
20°