Læknaneminn - 01.04.2022, Side 136
LÆKNANEMINN134
vandamál í framtíðinni. Lang flest þessara
brota þarf að meðhöndla með skurðaðgerð
og getur þá gerviliðurinn aukið flækjustig
aðgerðarinnar miðað við lærbrot hjá fólki
sem er án gerviliðs. Brotin eru flokkuð
eftir Vancouverflokkunarkerfinu.
Markmið rannsóknarinnar var að safna
faraldsfræðilegum gögnum um einstaklinga
með þessi brot, skoða aðgerðartækni sem er
beitt á Íslandi og tengja hana við Vancouver
flokkun brotsins og skoða lifun m.t.t. kyns
og blóðgilda.
Efniviður og aðferðir
Gerð var afturskyggn rannsókn á
einstaklingum sem voru greindir með
slík lærbeinsbrot og teknir til aðgerðar
á Landspítala á árunum 20102019.
Upplýsingar voru fengnar frá vöruhúsi
gagna á Landspítala og í sjúkrarskrárkerfinu
Sögu. Röntgenmyndir voru yfirfarnar,
einnig af sérfræðingi til að staðfesta flokkun
brots (AG, B1, B2, B3, C) og íhluti (gerviliður,
plata, vírar). Tölfræðiúrvinnsla var unnin í
Rstudio.
Niðurstöður
Heildarfjöldi varð 148, 56 tilfelli tilheyrðu
körlum og 92 konum. Meðalaldur við brot
var 80.1 ár. Tíu menn dóu innan árs (17.9%)
en 15 konur (16.3%); yfir heildina dóu 25
innan árs (16.9%). Vancouver flokkun
brotanna skiptist þannig að 3 (2%) flokkuðust
sem AG, 45 (30.4%) sem B1, 47 (31.8%) sem B2,
3(2%) sem B3 og 50 (33.8%) sem C. Þau brot
sem voru meðhöndluð með nýjum gervilið
án/með plötu til stuðnings voru: AG 66.6%
(33.3%/33.3%), B1 28.9% (20%/8.9%), B2 72.3%
(46.8%/25.5%), B3 66.6% (33.3%/33.3%), C
2% (0%/2%). Þau brot sem eftir standa voru
meðhöndluð með plötu og/eða cerclage
vír. Af þeim sem dóu innan árs höfðu 84%
hemoglobin undir viðmiðunargildum
(p = 0.057) og er það marktækt við 94%
marktæknikröfu, 54.2% af þeim sem dóu
höfðu kreatinin yfir viðmiðunargildum (p
= 0.002).
Ályktanir
U.þ.b. 15 einstaklingar koma með
grenndarbrot í lærbeini við mjaðmargervilið
á ári á Landspítalann. Konur eru u.þ.b.
tvisvar sinnum fleiri en karlar en ekki
er marktækur munur á dánartíðni milli
kynjanna. Aðgerðartækni á Íslandi passar
í flestum tilvikum við það sem Vancouver
flokkunin mælir með og þegar það passar
ekki eru útskýringar til staðar. Tengsl eru á
milli lágs hemoglobins og dánartíðni innan
árs og einnig hás kreatinins og dánartíðni
innan árs.