Jólapósturinn ([Akureyri] : 1949-1951) - 01.12.1949, Blaðsíða 15
J Ó L t N
JÓLAPÓSTURINN
1949
T i I
jólagjafa:
HÁLSMEN úr gulli og silfri
NÆLUR
EYRNALOKKAR
ARMBÖND
STEINHRINGAR úr gulli og silfri
PLÖTUHRINGAR fyrir herra
MANCH ETTU H N APPAR
BÓKAMERKI o. fl.
SYKUR- og SULTUSKEIÐAR
— Sendi gegn póstkröfu hvert sem er. —
Ásgrímur
Albertsson
gullsmiður
Hafnarstræti 83.
Kahler og kona hans stóðu hljóðlát við dyrnar og horfðu á
fólkið við jólatréð.
Gunna sat ólút og horfði á son sinn, og hún fann eitthvað
heitt detta niður á hönd sína. Þá leit hún upp og á manninn,
sem stóð fyrir framan hana. Hann stóð grafkyrr, en stór tár
runnu niður kinnar hans.
TVEIM KLUKKUSTUNDUM síðar sá lögregluþjónn, sem
var á verði, bifreið nema staðar fyrir framan hús Berntsons,
skrifstofustjóra. Út úr honum stigu tveir karlmenn og tvær
konur. Onnur þeirra hélt á stranga, sem hún fór afskaplega
varlega með. Lögregluþjónninn veitti þessu sérstaka eftir-
tekt vegna þess, hve fáir voru á ferli svona síðla kvölds.
Þetta kvöld var ljós í öllum gluggum, en eina ánægja hans
var að sjá kveikt á einu jólatrénu eftir annað að baki glugga-
tjaldanna.
Hann stundi þungan og gekk áfram. Það var fremur dap-
urlegt að þurfa að gegna þjónustu þetta kvöld, sem hann
hafði helzt kosið að vera heima og njóta hátíðarinnar.
Hálfri klukkustund síðar varð honum aftur gengið fram
hjá húsi Berntsons. Hann nam staðar andartak og leit upp
í gluggana.
Nú var líka búið að kveikja ljós í þessu húsi. Og allur stóri
glugginn á miðju húsinu var uppljómaður af stóru jólatré.
— Þetta er fallegt ásýndar, muldraði lögregluþjónninn.
Nú lítur þó raunverulega út fyrir, að jólin séu líka að byrja
hjá skrifstofustjóranum.
■<* Gleðileá jól! þ-