Bergmál - 01.07.1955, Síða 5
Eftirlætissonurinn heitir
Sadruddin — ekki Ali.
Aga Klian og synir lians
Ejtir Remo
Indverski furstinn Aga Khan,
sem frægur er um allan heim,
bæði fyrir auðlegð sína og eins
fyrir það, að hann er tignaður
sem guð, af að minnsta kosti 12
milljónum manna austur í Ind-
landi, er nú kominn til ára sinna,
því hann verður víst áttræður
á þessu ári.
Mikið hefur verið rætt og
ritað um það, hver muni verða
eftirmaður hans eða öllu heldur,
hvor sona hans verði það, því
hann á tvo syni, hinn fræga Ali
Khan og svo Sadruddin, sem er
hálfbróðir Ali.
Flestir munu álíta að Ali Khan
sé sjálfkjörinn sem eftirmaður
föður síns sem trúmálaleiðtogi
indverskra Múhameðstrúar-
manna, en sumir segja að karl-
inn álíti að Ali elski konur og
hesta meira en trúmál og þegar
AIi Khan, sem víða í blöðum er
farið að kalla „playboy“, en það
mætti líklega þýða á íslenzku
CUiceUi.
með orðinu ,,stælgæi“ ef það orð
er þá nookkuð íslenzkara en
hitt.
Já, þegar Ali nýlega talaði um
sjálfan sig sem sjálfkjörinn
eftirmann föður síns, sem jarð-
neskan guð 12 milljóna ismalit-
iskra Múhameðstrúarmanna þá
fékk hann heldur en ekki ofaní-
gjöf hjá pabba gamla.
„Hægan nú, strákur minn,
ennþá er ég ekki dauður, enn-
þá hef ég ekki sagt síðasta orðið,
og þegar þar að kemur, þá mun
ég sjálfur velja eftirmann minn
og mitt álit verður því næst
borið undir þegna mína.“
Mikilmennska og sjálfsálit
„stælgæjans" og ofanígjöf föður-
ins vöktu heilmikla athygli
hvarvetna í heiminum.
Flestir fóru að velta því fyrir
sér, hvað Aga gamli hefði sér-
staklega út á eldri son sinn að
setja sem eftirmann, en þeir
sem þekkja þessa „guðdómlegu“
3