Bergmál - 01.07.1955, Side 6

Bergmál - 01.07.1955, Side 6
J Ú L í Bergmál --------------------- fjölskyldu svolítið nánar, þeir þykjast renna grun í, hvað liggur að baki þessum orðum. Ali Khan er ekki sjálfkjör- inn eftirmaður föður síns sem leiðtogi þessa volduga trú- málaflokks. Keppinautur hans um auðinn og völdin er hálf- bróðir hans, prins Sadruddin, sem innan fjölskyldunnar er kallaður Sadri, og það er ekkert leyndarmál, að Sadri er -gull- kálfur gamla mannsins. Ef til vill er það aðeins til að grafa undan þessum keppinaut sínum, sem Ali Khan talaði um sjálfan sig sem væntanlegan eftirmann föður síns, hann gleymdi því, að Aga Khan, faðir hans, þessi fulltrúi Múhameðs hér á jörðu, er lífsreyndur og vitur maður, sem fyrr myndi fórna syninum en sannleik- anum. Aly Khan er að vissu leyti lifandi eftirmynd föður síns, en einnig að vissu leyti algjör and- stæða hans. Ali Khan líkist föð- ur sínum í því, að hann elskar fagrar konur og góða hesta og það er erfitt að skera úr því, á hvoru sviðinu hann er fremri. Hann hefur margoft verið við- riðinn hjónabandshneyksli og jafnoft viðriðinn skilnaðar- hneyksli, meðal annars í sam- bandi við enska samkvæmis- dömu og einnig Hollywood- stjörnuna Ritu Heywrrth. Hann er þó talinn vera algjörlega ósnortinn af öllum þeim hneykslum, sem hann hefur valdið og öllu umtali því að enn sézt hann oft í fylgd með fræg- um kvikmyndastjörnum eins og Joan Fontain og Gene Tierney og nú sem stendur þykir hann vera sérstaklega hrifinn af Yv- onne De Carlo. A frönsku Rivieraströndinni, þar sem hann heldur mest til, sézt hann jafnan hvarvetna þar sem drukknir eru cocktailar og dansað, enda þótt drykkju- skapurinn og óreglan hafi sett sín spor í andlit hans og hár hans sé farið að þynnast, þá hefur hann samt aldrei á móti því að láta taka ljósmyndir af sér og hneykslissnápar dagblaðanna elska hann og kalla hann gullna prinsinn. En það sem föður hans þykir verst af öllu er það, að Ali hefur engan áhuga, hvorki á menntun né menningu á einu né neinu sviði, einu bækur sem hann les t. d. eru stuttar handbækur í bridge. Aga Khan spyr sjálfan sig með réttu, hvernig hann geti verið þekktur fyrir að velja sem eftir- 4

x

Bergmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.