Bergmál - 01.07.1955, Síða 7
B E R G M Á L
1 9 5 5 ------------------------
mann sinn mann, sem varla
kann að stafa nafnið Mekka, og
það verður ekki með sanni sagt,
að Ali Khan hafi valið sér kunn-
ingja, sem fengið hafi orð fyrir
guðsótta né góða siði.
Öðru máli gegnir um prins
Sadruddin.
Sadri, gullkálfurinn, er snyrti-
legur og geðþekkur unglingur,
tuttugu og eins árs. Hann lærði
við háskólann í Harward og
gefur út bókmenntatímarit í
París og eru þeir meðritstjórar
hans rithöfundarnir Graham
Green, Moravia og Mauriac, en
sjálfur Picasso sér um mynd-
skreytingu tímaritsins.
Sadri er sonur Aga Khan frá
næst-síðasta hjónabandi hans,
er hann var giftur franskri
búðarstúlku, sem var dóttir
hótelstjóra og heitir Andrée
Caron.
Það má ef til vill segja að
hann. hafi fleiri hæfileika til þess
að verða Búdda og tákn guð-
dómsins sem eftirmaður föður
síns, en Aga Khan segir þó og
andvarpar um leið, að Sadri,
eftirlætissonurinn, hafi líka sína
galla.
Sadruddin prins er dökkur á
brún og brá og vel í holdum, því
hann er 97 kíló. Hann hefur ekki
farið varhluta af hinu veikara
kyni og það yrði langur listi, ef
telja ætti upp allar þær film-
stjörnur og dansmeyjar sem
hann hefur verið í kunningsskap
við.
Hann var aðeins seytján ára
þegar fyrst var talað um það að
hann gengi í giftingarhugleið-
ingum og myndi giftast frönsku
filmdísinni Aimée Anouk, og
aðeins nokkrum vikum síðar en
þetta var fullyrt, voru blöðin
búin að trúlofa hann dansmeyj-
unni Ethery Pagava, sem hann
kynntist í Monte Carlo, er hún
var einnig aðeins seytján ára að
aldri.
Nokkru síðar sást hann oft í
fylgd með Susan Zanuck, dóttur
Hollywood kvikmyndaframleið-
andans Zanuck o. s. frv.,o. s. frv.
Sú sem mest er umtöluð núna í
sambandi við Sadruddin heitir
Liliane Robin og er kvikmynda-
leikkona. Sadri og Liliane hafa
víst kynnst í Sviss, en þar iðkar
prinsinn vetraríþróttir á sína
vísu.
Þegar venjulegir vetrargestir
taka skíðin sín og fara að klifra
upp fjallið, þá er Sadri sóttur af
sínum eigin helikopter og flogið
með hann upp á toppinn á
3500 metra háu fjalli, en síðan
rennir prinsinn sér sjálfur niður
á sínum eigin skíðum. Svo þegar
5