Bergmál - 01.07.1955, Side 12

Bergmál - 01.07.1955, Side 12
B E R G M Á L------------------- blaðanna, að Subrac var al- mennt álitinn vera sérvitringur, sumar sem vetur gekk hann í svartri síðri úlpu einni saman c með inniskó á fótunum. Hann var vel efnum búinn, og af því að klæðnaður hans vakti undrun mína, þá spurði ég hann einn daginn, hver orsökin væri. „Það er til þess að ég geti verið enn þá fljótari að afklæða mig, ef þörf skyldi krefjast,“ svaraði hann. „Reyndar venst maður því fljótt að vera léttklæddur, það er meira en nóg að vera að- eins í einni skyrtu, einum bux- um og úlpu utan yfir. Ég hef gengið svona klæddur síðan ég var tuttugu og fimm ára og ég hefi aldrei veikst.11 Þessi orð urðu fremur til að auka forvitni mína en draga úr henni. Hvers vegna, hugsaði ég, skyldi Honoré Subrac skyndi- lega þurfa að afklæða sig í mesta flýti? Ég komst ekki að neinni niðurstöðu, þrátt fyrir ýmsar hugmyndir, sem ég gerði mér um það. Kvöld eitt kom ég venju fremur seint heim til mín, eða klukkan að ganga tvö að nætur- lagi, og þá heyrði ég skyndilega að það var einhver sem nefndi nafn mitt í hálfum hljóðum. Mér virtist sem hljóðið kæmi frá ----------------------- J ú l í húsveggnum rétt við dyrnar hjá mér. Ég nam staðar og var óþægi- lega snortinn. „Er nokkur úti á götunni?" spurði röddin. „Það er ég sem tala, Honoré Subrac.“ „En hvar í ósköpunum ertu?“ hrópaði ég og horfði í allar áttir, án þess að sjá nokkurs staðar afdrep, þar sem að vinur minn gæti dulizt. Hið eina, sem ég sá af honum var síða úlpan hans, hún lá á steinveggnum rétt við garðshliðið og við hlið hennar lágu inniskórnir hans, sem ég kannaðist vel við líka. A-ha, 'hugsaði ég. Nú hefur eitthvað komið fyrir, sem neytt hefur Honoré Subrac til að af- klæðast í skyndi, það var gam- an að fá loks tækifæri til þess að fá leyndarmálið upplýst. En upphátt sagði ég. „Það er eng- inn úti á götunni, kæri vinur, þú getur komið hingað til mín.“ Andartaki síðar stóð Honoré Subrac við hlið mína og mér fannst eins og hann hefði sprottið út úr sléttum húsveggn- um, sem ég hafði þó horft á án þess að geta séð hann. Hann var allsnakinn, en greip strax hemp- una sína og sveipaði henni um sig í mesta flýti, því næst smeygði hann sér í morgun- 10

x

Bergmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.