Bergmál - 01.07.1955, Side 13

Bergmál - 01.07.1955, Side 13
B E R G M Á L 1 9 55 ------------------------- skóna og fylgdist með mér upp í herbergi mitt, en þar sagði hann mér óumbeðið frá leynd-' armáli sínu. „Það eru vfst engar ýkjur, þó maður segi að þú hafir orðið undrandi,“ sagði hann, „en nú skilur þú kannske, hvers vegna ég geng svona einkennilega klæddur, enda þótt þú skiljir varla, hvernig ég fór að því að fela mig svona vel, en það er í raun og veru mjög einfallt og og auðvelt. Þetta er aðeins að- lögunarhæfileiki, sá hæfileiki að samlagast umhveríinu full- komlega. Náttúran er góð móðir, hún hefir gefið veikbyggðustu börn- um sínum þann hæfileika að geta samlagazt umhverfinu, þegar hætta er á ferðum. Þetta hefir þú vafalaust heyrt áður. Þú veizt, að fiðrildi líkjast mjög blómum og mörg skordýr líkjast laufblöðum, kamelljónið skiptir um lit eftir því umhverfi sem það er statt í, hérar, sem eiga heima í norðlægari löndum eru hvítir til þess að geta samlagazt umhverfinu, enda er illmögu- legt að sjá þá í snjónum. Hér- arnir á ökrunum hérna eru aftur á móti mjög líkir gróðurlaginu í því héraði, sem þeir halda til í. Þannig tekst veikbyggðari dýr- um að forðast óvini sína og þrautseigja einstaklinganna í að ná þessum árangri gefur svo góða raun, að smátt og smátt fær öll ættkvíslin á sig þann lit, sem sótzt var eftir. Og ég sem er stöðugt eltur af miskunnarlausum óvini, ég sem skelf og titra og er algjörlega óhæfur til að verja sjálfan mig í handalögmáli eða vopnavið- skiptum, mér hefir tekizt það sama eins og þessum dýrum. Vegna hins óstjórnlega ótta, sem ég er haldinn og með gífur- legum viljakrafti hefur mér tekizt að samlaga sjálfan mig því umhverfi, sem ég er staddur í. Það eru nú mörg ár liðin síðan ég fyrst uppgötvaði að mér væri þessi hæfileiki gefinn, hæfileiki sem ég hef síðan æft og þjálfað af fremsta megni. „Ég var þá tuttugu og fimm ára gamall og konum fannst ég yfirleitt mjög vel vaxinn og að- laðandi maður. Ein þeirra, sem reyndar var gift kona, sýndi mér svo mikil vinarhót, að ég gat ekki staðizt það, en vinátta hennar varð örlagarík. Kvöld eitt var ég heima hjá henni, eiginmaður hennar hafði farið í ferðalag og ætlaði að vera í nokkra daga að heiman. 11

x

Bergmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.