Bergmál - 01.07.1955, Page 17

Bergmál - 01.07.1955, Page 17
SKRÍTLUSÍÐA Listamaðurinn hafði lokið lestri bókar, sem hann hafði tekið að sér að myndskreyta. „Heyrðu annars," sagði hann við konuna sína, „þessi saga á að hafa gerzt fyrir átján árum síðan, eða árið 1937, hvernig voru kvenkjólarnir þá?“ „Eins og þessi, sem ég er i,“ svaraði hún og leit grimmdarlega til hans. ★ Það er sagt að börn séu komin á bernskuskeiðið þegar þau fara að reyna að ala upp foreldra sína. ★ Einn af þessum nýríku í Reykjavík, sennilega úr þeim hópi manna, sem blöðin nefna fj ármálamenn, hringdi hér um daginn á opinbera skrifstofu í höfuðborginni og bað um upplýsing- ar varðandi ferðalag, sem hann hugð- ist taka sér fyrir hendur. Skrifstofu- maðurinn sem svaraði fyrirspurnun- um lenti í hálfgerðum vafningum með að svara, vegna þess að spyrjandinn, sá nýríki, hafði ekki gert sér fulla grein fyrir því að Dettifoss væri norðanlands og heldur ekki, að Hall- ormsstaðaskógm- gæti verið annars staðar ?m í Þórsmörk. Þessir vafningar skrifstofumannsins urðu þess valdandi, að sá nýríki missti alla þolinmæði og æpti í símann: „Ég tala alls ekki við yður meira, en vil fá mann með heila í hausnum í þennan síma.“ „Gjörið þér svo vel, herra ...... Ég skal bíða í símanum á meðan þér sækið hann.“ Maður nokkur, sem hafði drukkið helzt til mikið í samsæti einu, ákvað að stytta sér leið heim til sín og gekk því yfir kirkjugarðinn, en svo ó- heppilega vildi til að hann álpaðist ofan í nýtekna gröf, sem tekin hafði vérið þetta kvöld. Vegfarandi einn heyrði hróp hins drukkna manns niðri í gröfinni og hugðist skjóta hönum skelk í bringu. Hann gekk því að gröfinni og sagði með draugslegri röddu. Hvað ert þú að gera í minni gröf.“ Fulli maðurinn niðri í gröfinni hætti hrópunum og stóð sem steini lostinn. ,,Hvað ert þú að gera í minni gröf?“ spurði vegfarandinn á ný, uppi ó grafarbarminum. „Hik — hvað ég er að gera í þinni gröf?“ muldraði sá fulli og klóraði sér í hnakkanum. „Það væri nær að ég spyrði hvern fjandann þú ert að flækjast upp úr henni?“ ★ Sjö ára snáði kemur til pabba síns út í skemmu: „Heyrðu, pabbi, lamdi afi þig hér áður fyrr?“ „Já, sonur sæll.“ „En heldurðu að langafi hafi lamið afa á sínum tíma?“ „Já, sonur sæll.“ „En heldurðu að langa-lang-afi hafi lamið langafa?" „Já, sonur sæll.“ „Heyrðu pabbi, gætum við ekki hjálpast að við að uppræta þehnan arfgenga ruddaskap?“ 15

x

Bergmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.