Bergmál - 01.07.1955, Page 36

Bergmál - 01.07.1955, Page 36
B E R G M Á L---------------------- inu. En þrátt fyrir það er hann hund- óánægður með kaup sitt, og hyggst stofna nýtt kvikmyndatökufélag. ★ Lauritz Melchior, danski óperu- söngvarinn, er sagður sitja með sveitt- an skallann við að semja æviminn- ingar sínar. Ennþá hefir hann þó ekki valið ævisögunni nafn. Einhver gárungi stakk upp á því við hann að láta bókina heita „Stór-Dani“, því að til væri á Norðurlöndum eitthvað sem héti „Stór-Svíi“, og því þá ekki eins „Stór-Dani“, enda yrði aldrei annað sagt en Melchior bæri nafnið með rentu. Ekki hefir fengizt staðfest hvort Melchior samþykkti þessa tillögu. ★ Ava Gardner hefir falið sig bak við gríðarstór, dökk sólgleraugu einhvers- staðar í Dýflinni síðan hún skildi við Frank Sinatra. Nú hefir heyrzt að þau Ava og Frank muni eiga að leika saman í kvikmynd á næstunni, en hvorugt þeirra segist þó hafa heyrt það annars staðar en í slúðurdálkum leikarablaðanna. Frank hefir dvalizt í Ástralíu undanfarið og alls ekki falið sig á bak við neitt. Hann lætur vel af Ástralíu og segir það vera eitt dásam- legasta land sem hann hafi heimsótt, og því til sönnunar segir hann að tuttugu þúsundir manna hafi komið til að sjá hann, er hann kom á flug- völlinn í Sidney, og þó hafi það verið seint um kvöld og klukkutíma ferð sé frá höfuðborginni út á flugvöllinn. ★ Vinnukonuvandræði eru mikil í Hollywood, til dæmis segir Brenda Marshall, að hún hafi orðið að hætta ---------------------------- J Ú LÍ að leika, til þess að geta sinnt heimili sínu, en hún er gift ^Ailliam Holden leikara. Þau gátu að vísu fengið þjón; sem gjarnan vildi taka að sér hús- störfin öll, en hjónunum kom saman um að hann væri svo dýr, að það þyrfti fok-ríkt fólk til að standa undir slíkum lúxus. ★ June Havoc er aftur á móti ein þeirra, sem er svo hamingjusöm að hafa góða vinnukonu, en það munaði litlu að hún missti hana í fyrra sumar, því að Esther Williams var að reyna að lokka hana til sín, og sagði vinnu- konan húsmóður sinni, June Havoc, að hún væri að hugsa um að skipta um vist vegna þess að Esther byggi nær miðborginni. June klappaði á öxl- ina á vinnukonunni og sagði: „Góða láttu þér ekffi detta slíkt í hug, það er hvergi hægt að stinga niður fæti heima hjá henni Esther fyrir rénnandi blautum sundbolum." Vinnukonan vissi auðvitað að Esther Williams er frægasta sundkona Hollywood, og lét sér segjast, svo að hún er enn hjá June Havoc. ★ Paulette Goddard hefir að sjálfsögðu auglýsingafulltrúa eins og aðrar Holly- wood-stjörnur. Hér um daginn vildi auglýsingastj óri hennar vekja ræki- lega athygli á henni með því að færa blöðunum þær fréttir, að hundurinn hennar hefði gleypt alla skartgripi sem hún ætti. Pauletta hrópaði upp yfir sig: „Ertu orðinn vitlaus, maður, þá myndu menn álíta að skartgripir mínir væru svo fáir að þeir kæmust fyrir í magan- um á kjölturakka." 34

x

Bergmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.