Bergmál - 01.07.1955, Page 37

Bergmál - 01.07.1955, Page 37
KVIKMYNDASAGA Heillandi — viðburðarík — ástarsaga. EYÐIMERKUR HERDEILDIN Eftir Murcel de Grave Það sem áður er komið: Poul Lartal kapteinn í frönsku Út- lendingaherdeildinni fer með herflokk tii að leita að Omar Ben Kalíf, en er þá gert fyrirsát og liði hans gereytt. Sjálfur særist hann hættulega, en er þá bjargað af ungri stúlku, sem hjúkr- ar honum og skilur hann því næst eftir þar sem leitarmenn Útlendinga- herdeildarinnar finna hann og flytja hann til bækistöðva sinna. Síðar slæst hann í fylgd með Plevko, gömlum Her- sveitarmanni, undir leiðsögn arabisks manns, sem fylgir þeim um leynistíg inn í Iraouenfjallgarðinn, þar sem þeir koma að lokum að fagurri borg og er Lartal leiddur fyrir foringja borgar- innar, sem nú gengur undir nafninu Si Khalil, en er i raun og veru gamall Herdeildarmaður. — Ungur, mentaðar- gjarn maður að nafni Crito hyggst ná völdum í þessari friðsömu borg með því að giftast Morjana, en Si Khalil, faðir hennar, vonar að Lartal komi í veg fyrir það með því að giftast Mor- jana sjálfur. Fyrstu nóttina í leyni- borginni læðist launmorðingi inn í svefnherbergi Lartals. Það er sagt að sannur Her- deildarmaður sofi alltaf með annað augað opið og hlusti jafnframt með öðru eyranu. Hvernig sem því annars er varið, þá fann Lartal það í gegn- um svefninn að hætta væri yfir- vofandi og glaðvaknaði á sama andartaki, en hreyfði sig ekki. í sömu mund og rýtingnum var brugðið á loft snaraðist Lartal fram úr rúminu. Rýtingurinn var rekinn á kaf í sængurfatn- aðinn, en á sama augnabliki greip Lartal um úlnlið árásar- mannsins, en maðurinn var sterkur og ákveðinn í því að ljúka ætlunarverki sínu. Hon- um tókst að snúa sig af Lartal og hóf rýtinginn á loft á ný. 35

x

Bergmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.