Bergmál - 01.07.1955, Síða 38

Bergmál - 01.07.1955, Síða 38
J Ú L í B E R G M Á L---------------- Lartal. beygði sig eldsnöggt nið- ur og greip um báðar fætur andstæðings síns svo að hann missti jafnvægið og féll á gólfið. Þeir tókust á á gólfinu, og að lokum tókst Lartal að ná um úlnlið mannsins, hægt og hægt tókst honum að beygja hand- legg hans á bak aftur, þar til að lokum, að launmorðinginn hljóðaði upp yfir sig og sleppti hnífnum. Hann var nú auðveld- ur sem lamb og kveinaði og kvartaði og baðst hlífðar. Lartal virti hann fyrir sér og veitti því þá athygli að það glampaði á sili'ur undir jakkalafi hans. Þetta var úrkeðja og við það fest gull- úr og aftan á því stóð H. Smith corporal. Þetta kallaði fram í huga Lartals allt sem gerzt hafði daginn sem honum var veitt fyrirsát, hann sá Smith fyrir sér liggjandi á orustuvell- inum skotinn í bakið. Nú vissi hann hver einn af morðingjun- um hafði verið, en þótt honum væri það nú ljóst, þá hafði hann samt enn ekki komizt á snoðir um allt hið sanna í málinu, enda þótt hann grunaði hvert sam- hegnið væri. Fótatak heyrðist utan við dyrnar og var þeim hrundið upp. Þar var Crito kominn og á hæla honum kom Morjana. Unga stúlkan var skelfingu lostin, þar til hún hafði komizt að raun um, að Lartal var ósærður. Crito var sótrauður í andliti af reiði, en hann hafði þó nokkurn veginn vald yfir röddinni, er hann sagði ógnandi: „Ég sagði yður að það væru til menn, sem ekki geðjaðist að nærveru yðar. Þessi maður er einn af áhangendum mínum, en hann er bjálfi.“ Lartal tók upp úrið. „Ég fann þetta í vasa hans, og nú veit ég hver stóð fyrir launsátinni,“ sagði hann. Crito glotti illkvittnislega. „Já,“ sagði hann, „það var ég sem gerði yður fyrirsát, ég er sá sem þér hafið nefnt Omar Ben Kalíf, ég mun ganga með sigur af hólmi, fyrirsátin var aðeins byrjun.“ Lartal gekk hægt og rólega til hans og þaggaði niður í honum með því að gefa honum kinn- hest. „Slík móðgun,“ sagði Crito, „heimilar mér vafalaust að velja vopn í einvígi okkar, það verð- ur lensa.“ Lartal kinkaði kolli. Hann veitti því athygli, að Morjana greip til munnsins eins og til þess að forðast að hrópa upp yfir sig, en hún sagði ekki neitt. 36

x

Bergmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.