Bergmál - 01.07.1955, Blaðsíða 47

Bergmál - 01.07.1955, Blaðsíða 47
B E R G M Á L 1 9 5 5 --------------------- hverrar magnvana bræði, sem ekki gat fengið útrás. Dagar liðu, vikur og mánuðir, og alltaf var Júlía vernduð eins og postulínsbrúða í glerskáp. Fyrir kom að hún reiddist við Símon, en þá endaði það jafnan með því, að hann kom henni til að hlæja og á eftir varð hún svo ennþá reiðari. Hún var afbrýði- söm vegna þess að fyrrverandi vinir hennar, sem hún hafði þekkt áður en hún kynntist Símoni, urðu allir stórhrifnir af honum. Henni fannst stundum jafnvel eins og henni væri ýtt til hliðar, eða hún stæði í skugg- anura. Hún var jafnvel farin að kvíða fyrir framtíðinni. Hún óttaðist það, að þegar börnin kæmu, börnin, sem þau bæði vildu eignast, þá myndi hún standa jafnvel enn meir í skugganum en nú væri, að hinir dásamlegu synir og dætur, sem hún eignaðist, auðvitað yrðu börnin dásamleg eins og faðir- inn, myndu smátt og smátt draga alla athyglina frá henni og hún stæði ein og yfirgefin í skugganum. Eitt síðsumarkvöld, er kvöld- sólin skein inn á milli persnesku gluggatjaldanna sátu þau Júlía og Símon hlið við hlið inni í stofu og horfðu á leiksýningu í sjónvarpinu. Júlía hafði nú loks tekið ákvörðun. Hún varð að binda endi á þetta allt saman, segja honum frá því, að hún gæti ekki lifað í sambúðinni við hann, enda þótt hann væri ein- mitt eins og sá maður átti að vera, sem hana hafði alltaf dreymt um, eða svo fullkomlega ólastanlegur að hann var tæpast mannlegur. Hún varð að hugsa um hvernig hún gæti komið orðum að því, sem hún þurfti að segja, en í sama mund og hún ætlaði að hefja máls sagði Símon skyndilega. „Ég ætla að ná í eitthvað handa okkur að drekka.“ Hann stóð á fætur og gekk fram í eld- hús. Júlía sat kyrr og hugsaði um það, hvernig hann myndi taka því, og hún þóttist viss um það, að hann yrði alveg eins og prinsinn í ævintýrinu, það myndi verða þögn eitt andartak, ekki eitt orð til ámælis, engar fortölur, kannske aðeins: „Eins og þér þóknast.11 Svo myndi hann ganga hljóðlega á brott og hún myndi heyra hljóðið í bíln- um, er hann æki á brott frá hús- inu og næst myndi hún sjá hann 45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Bergmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.