Bergmál - 01.07.1955, Qupperneq 49

Bergmál - 01.07.1955, Qupperneq 49
Dularfullur híjómlistarmaður Smásuga eflir Konstantin Paustovskij Höfundur þessarar smásögu, Kon- stantin Paustovskij er fæddur árið 1893 austur í Rússlandi og var faðir hans verkfræðingur. Konstantin var við nám í háskólanum í Kiev, en að loknu námi festist hann ekki við neitt ákveðið starf og fékkst við allt mögu- legt. Um 1930 vakti hann fyrst athygli á sér sem rithöfundur. Síðan hafa komið frá honum margar bækur um ýmisleg efni. Árið 1932 kom frá hon- um skáldsaga sem gerizt austur í Mið- Asíu og 1934 bók sem segir frá skurð- greftri og ýmsum verklegum fram- kvæmdum í Kákasus á meðan Rússar voru að framkvæma „Fimm ára áætlunina" en sú bók hans mun einna mest lesin. Þá hefir hann einnig skrifað fjölda leikrita og smásagna. Árið 1945 skrifaði hann bók sem að mestu byggðist á æviatriðum hans sjálfs og kallaði hana „Horfin ár“. Fyrir þá bók fékk hann mikið lof gagnrýnenda og var honum jafnvel líkt við Tjechov að frásagnarlist. Eitt vetrarkvöld veturinn 1786, lá gamall, blindur maður banaleguna. Hann var fyrrver- andi matreiðslumaður hjá Thun greifynju, húsið eða réttara sagt skúrgarmurinn, sem hann bjó í lá á afskekktum stað inni í van- hirtum trjágarði í einu af út- hverfum Vínarborgar. Gulnuð blöð og visnar trjágreinar lágu hér og þar á götunni, og brakaði undir fæti, er maður gekk um, og þá urraði gamli bundni varð- hundurinn inni í byrgi sínu. Hvorki hann né húsbóndi hans áttu langt eftir ólifað, og hund- urinn megnaði varla að gelta lengur. Sjóðheitar matarguf- urnar sem í sífellu höfðu stigið upp frá eldavélinni ollu því að matreiðslumaðurinn hafði smátt og smátt farið að missa sjón og að lokum orðið alblindur. Greif- ynjan hafði þá fengið honum þennan litla kofa til að búa í, og við og við færði hún honum nokkrar flórínur til þess að hann gæti dregið fram lífið. Hjá gamla matreiðslumann- inum bjó dóttir hans átján ára gömul, María að nafni. Húsgögn- in voru aðeins tvö lítil rúm, tveir stólgarmar, eitt borð, slegið saman úr óhefluðum fjöl- 47
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Bergmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.