Bergmál - 01.07.1955, Qupperneq 50

Bergmál - 01.07.1955, Qupperneq 50
B E R G M Á L------------------- um, nokkrir sprungnir og skáld- aðir postulínsdiskar og eitt gam- alt píanó. Það var það eina, sem María átti af húsgögnunum, og hún var stolt af því. Þetta píanó var gamalt mjög, en samt var ennþá vel hægt að spila á það, en svo fúið var gólfið orðið, að þegar gengið var um kofann, lék píanóið á reiðiskjálfi og daufur hljómur heyrðist frá strengjun- um. Gamli matreiðslumaðurinn var vanur að segja í gamni að píanóið væri verndarandi húss- ins, því að jafnskjótt og komið var inn úr dyrunum, kom dauf- ur hljómur þess á móti manni. Á meðan María var önnum kafin við að þvo gamla mannin- um og færa hann í hrein nærföt, sagði hann: „Ég hefi aldrei verið hrifinn hvorki af prestum eða munkum, svo að ég á engan skriftaföður, en ég vildi gjarn- an mega létta á samvizku minni áður en ég dey, gakktu fyrir mig út á veginn og biddu þann fyrsta sem þú mætir að koma hingað inn til okkar. Segðu að það sé deyjandi maður sem óski að létta á hjarta sínu. Þú mátt trúa því að enginn færist undan því.“ „Vegurinn hingað er svo fá- farinn og eyðilegur," sagði María --------------------- J ú l í um leið og hún hnýtti á sig höf- uðskýluna og gekk út. Hún hraðaði sér gegnum trjágarðinn og opnaði með erfiðismunum ryðgaða járngrindina og stóð því næst utan við hana. Engin lifandi vera sást nokkurs staðar á veginum. Kaldur vetrar- vindurinn þyrlaði til visnuðum blöðum og úr lágskýjuðum himni sleit kuldaregn. María stóð lengi og hlustaði, og að lok- um veitti hún athygli manni sem kom gangandi eftir vegin- um og raulaði fyrir munni sér. Hún gekk föstum skrefum í veg fyrir hann og nam staðar beint framan við hann. Hún tók hik- andi um hönd hans og færði honum skilaboð föður síns. Ókunni maðurinn leit undr- andi á hana, og sagði svo ró- lega: „Prestur er ég að vísu ekki, en það skiptir ekki máli, við skulum koma.“ Þau fylgdust að inn í kofann og við daufa lampaskímuna þar inni sá María að ókunni maður- inn var grannur og fremur smá- vaxinn maður. Hann færði sig úr yfirhöfninni og lagði hana á stól. Fatnaður hans var látlaus en smekklegur, hann var klædd- ur svörtum lafafrakka með skel- plötutölum og hvítum knippl- 48
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Bergmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.