Bergmál - 01.07.1955, Side 52
J Ú L í
Bergmál --------------------
samvizku minni.
Þegar eiginkona mín veikt-
ist af lungnabólgu, fyrirskip-
aði læknir hennar, að hún
skyldi drekka rjóma og volgt
rauðvín og jafnframt yrði hún
að nærast á vínberjum. Þá var
,það sem ég drýgði þá synd að
taka dálitla gullskál, sem til-
heyrði borðbúnaði greifynju
Thun. Þessa gullskál braut ég
í marga mola og seldi þá einn og
einn í einu til þess að geta keypt
það sem kona mín þurfti af með-
ulum. Ég hefi leynt dóttur mína
þessum þjófnaði þar til nú í dag,
enda hefi ég jafnan innrætt
henni að hún megi ekki hreyfa
,með litla fingri við eigum ann-
arra manna.“
„Var nokkur úr þjónustuliði
greifynjunnar ásakaður um
stuldinn?“ spurði ókunni mað-
urinn.
„Nei, guði sé lof, þetta varð
engum til meins, og ef ég hefði
vitað fyrirfram að þetta kæmi
ekki að neinu gagni, að eigin-
konu minni yrði ekki á neinn
hátt bjargað, þá get ég fullviss-
að yður um það, herra minn, að
ég hefði aldrei tekið þessa gull-
skál.“
„Hvað heitið þér?“ spurði
ókunni maðurinn.
„Jóhann Meyer,“ svaraði
hann.
„Jæja þá herra Meyer,“ sagði
ókunni maðurinn og lagði hend-
ina yfir augu hins blinda manns.
„Þér eruð saklaus, það sem þér
frömduð getur ekki reiknast
synd, þér gerðuð það vegna
ástar á eiginkonu yðar.“
„Amen,“ stamaði gamli mað-
urinn.
„Amen,“ endurtók ókunni
maðurinn. „Hver er síðasta ósk
yðar, herra Meyer.“
Dauft bros lék um andlit
gamla mannsins og hann sagði:
„Hve mikið vildi ég ekki gefa
til þess að fá ennþá einu sinni
að sjá eiginkonu mína eins og
hún var í fyrsta skipti sem ég
hitti hana hér í þessum gamla
trjágarði, er allt stóð hér í vor-
blóma, sólin skein og fuglarnir
sungu, en slíkt er ekki hægt.
reiðist mér ekki, herra minn, ég
er gamall maður, sjúkur og
barnslegur.“
„Jæja þá,“ sagði ókunni mað-
urinn og stóð á fætur frá stól
sínum. „Jæja þá, herra Meyer,“
sagði hann aítur um leið og
hann gekk yfir að píanóinu og
settist við það. „Ósk yðar skal
verða uppfyllt.“
Hann lét fingurnar leika hratt
yfir nóturnar, tónarnir fylltu
þetta litla herbergi. Það var
50