Bergmál - 01.07.1955, Qupperneq 65
Bergmái
1955
upplýsingar, sem þér getið veitt og jafnframt fengið skýrslu um
starfsferil hans hjá brezka flughernum, þá getum við áreiðanlega
gert okkur nokkuð glögga hugmynd um fortíð hans, og það er í
haris sjálfs þágu að við gerum það sem allra fyrst. Þér hljótið að
sjá það sjálfar, Christine. En burtséð frá þeirri hlið, sem snýr að
Johnny sjálfum, þá ber okkur einnig að líta á þá hlið, sem snýr að
leyniþjónustunni brezku. Þér munið að ég sagði yður frá því, að
hann fannst gangandi á götu í Vestur-Berlín og skilríki þau sem
hann hafði á sér, voru ekki hans skilríki og það virðist augljóst mál
að hann hafi komið frá austurhluta Berlínar, sem er austan járn-
tjalds.“
„Christine,“ sagði David og hallaði sér að herini og horfði í augu
henni. „Eg hefi vitað það allan tímann að yður væri ekkert kapps-
mál að komast að því hver hann væri, enda þótt ég hafi enga hug-
mynd um hvers vegna. Mér var það ljóst, að yður fannst fullkom-
lega réttlætanlegt að halda því út af fyrir yður sem þér vissuð,
þangað til þér gengjuð úr skugga um það, hvort Johnny væri þessi
Tony. En,“ bætti hann við, og lagði mikla áherzlu á það sem hann
sagði, „ég held að yður sé óhætt að treysta mér og segja mér nú
allt af létta. Ég mun áreiðanlega ekki gera annað, en það sem ég
tel að sé honum fyrir beztu. Sem læknar, þá hljótum við bæði að
leggja fyrst og fremst áherzlu á það, ekki satt.“
Christine var þungt um andardráttinn. „Jú,“ svaraði hún, „og ég
treysti yður, David, fullkomlega.“
Já, hún treysti þessum hávaxna, myndarlega manni. Hún treysti
honum betur en hún hafði nokkru sinni fyrr treyst nokkrum karl-
manni, öðrum en Tony, en sannleikurinn var sá, að hún vissi ekki
allt af létta. Henni var ekki kunnugt um þá smán, sem ef til vill var
tengd sögu Tony. Hún vissi aðeins nokkurn hluta af sannleikanum,
og þeim hluta hafði hún reynt að gleyma undanfarið. Nú kæmist
hún ekki undan því að segja David allt sem hún vissi.
„Ég ætla að segja yður allt sem ég veit,“ hvíslaði hún.
Hann tók þþttara um hönd hennar.
Framh. í næsta hefti.
63