Bergmál - 01.07.1955, Side 67
K R E D D U R
1. Hellist eitthvað niður, kemur
drukkinn maður bráðlega.
2. Rekist hnífar saman, veit það á
þerri.
3. Hnerri veikur maður þrjá hnerra
á sunnudegi, er það batamerki.
4. Ef rignir, þegar menn flytjast bú-
ferlum boðar það auðsæld þeirra,
sem flytja sig.
5. Ekki mega þungaðar konur klippa
neðan af hári sínu, því að þá verða
börn, sem þær ganga með, sköllótt.
6. Ekki má telja ofan í sig bita eða
spæni, því að þá verða menn sí-
svangir.
7. Eigi skal maður stela hesti, nema
hann bregði krossmarki yfir hann,
áður en hann fer á bak, því að ella
verður hann fastur við hestinn.
8. Ekki mega menn éta mænu úr
neinu dýri, því að þá er þeim hætt
við bakverk.
9. Ekki má éta þunna bax'ðið, lúsa-
barðið, af þorskkinnfiski. Sá, sem
étur það, verður lúsugur eða lýg-
inn.
10. Ekki mega menn leggja sig
eftir máltíð eða lestur, því að þá
verða þeir latir.
H J Á T R Ú
Óbrigðult ráð við kvefi er að vefja
úthverfum sokk af hægra fæti um
um, en vefja síðan sokkabandi af
sama fæti um sokkinn, á hálsinum.
★
Þegar hús er nýreist, skal bera rúg-
brauð og salt í það fyrst af öllu matar-
kyns. Mxm þá aldrei verða matar-
skortxxr í því húsi.
Ætli maður bæjarleið, skal hann
ganga nokkur spor aftur á bak, áður
en hann leggur af stað, til þess að
sækja ekki að fólkinu á bænum, sem
hann ætlar á.
★
Sé maður hræddur um, að draumur
sinn boði illt, skal hann segja jarð-
föstum steini drauminn. Mxm hann þá
ekki koma fram.
★
Gott ráð til að losna við vörtur er
að halda höndunum hálfa stund inni
í gorvömb, þegar eftir að farið hefir
verið innan í skepnu.
Að tjaldabaki í kvikmyndaheimin-
um leynist oft elskulegt og heilbrigt
heimilislíf, enda þótt stundum sé erfitt
að trúa því. Það eru aðeins hneykslis-
málin og hjónaskilnaðirnir, sem stöð-
ugt er japlað á í fréttablöðunum,
sjaldnar um rólegt og ánægjulegt
heimilislíf leikaranna. í þessu hefti
finnið þið nokkrar myndir af heims-
frægum leikurum, myndir, sem
tengdar eru fjölskyldu- og heimilislífi
þeirra.
Á bls. 17 sjáið þið mynd af enska
skapgerðarleikaranum James Mason
með fjölskyldu.
Á bls. 25 sjást myndir af amerísku
leikkonunni Laureen Baeall með börn-
um hennar.
Og á bls. 49 er mynd af Ann Blyth
með son.