Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar - 01.09.2002, Qupperneq 10

Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar - 01.09.2002, Qupperneq 10
béyrou ; (BEIRL iSid&ftl ofíþalfa . ‘atlit / s Aditj ZHdxran YaJaM CAESÁRE/Jlí Háder ip J m s Netánya Ull HerzJíyy^ Tef AvivJ úfeffajY,afO/T^ ^JShon/Ie Zi RaipaHa JenchoJ Ashdoi ihqeloni SHQEL0fj//5 'AjtHÍSlg Hehroi halu; shiv :zana asdat /V 850 HarNai '{>€i Ramoi; azevj U,1 Kveðjur frá Betlehem Ég er nýkominn heim frá Palestínu. Þar var ég sjálfboðaliði fyrir Hjálp- arstaif kirkjunnar í fimm mánuði. Palestína er land fyrir botni Miðjarð- arhafsins og er nágranni ísraels. Þið hafið eflaust heyrt um þessar tvær þjóðir og séð í fréttum að þær eru í miklum vanda vegna ósættis sín á milli. Mörg voðaverk hafa verið framin og Hjálparstarf kirkjunnar ákvað ..að senda mig og Svölu Jónsdóttur út til að vera vitni að því sem ger- *st' tsrac' °§ Palestínu og segja frá því hérna heima. Við áttum líka (Tyre) Hv AAlýú að reyna að draga úr ofbeldi með því að vera útlendingar á staðn- um. Það hjálpar oft. Ég sá ofbeldi og óréttlæti á hverjum degi. Það var oft mjög erfitt og ég var stundum dapur og sár yfir öllu því sem ég þurfti að sjá og upplifa. Ég gerði margt, ég fór með matarsendingar til borga í Palestínu Soud er 11 ára og á heima í bænum Artas í Palestínu. Hann á tvo bræður og eina systur. Eitt sinn þegar pabbi Souds var í vinnunni komu hermenn og gerðu húsleit. Soud, systkini hans og mamma voru færð inn í eldhúsið og þar stóð vopn- aður hermaður yftr þeim meðan hinir leituðu. Þeir voru ekki fyrr farnir en aðrir hermenn komu og gerðu aðra leit. Soud var bálreiður en þorði ekki að gera neitt. Pabbi hans hafði bannað honum að gera nokkuð til að styggja ísraelska her- menn. Pabbi hans hafði sloppið naumlega út úr húsi sem sprengt var í loft upp og hafði tvisvar fengið hjartaslag. Hann treysti á Soud til að hjálpa fjölskyldunni ef eitthvað kæmi fyr- ir sig. En Soud ímyndaði sér hvað hann myndi gera. Hann langaði að taka beittan hníf úr skúffuni og stinga hermanninn. Fara síðan á eftir hinum og drepa þá líka. Soud dáist að þeim sem fórna sér og sprengja óvininn í loft upp. Því fleiri sem deyja því betra finnst honum. Soud er viss um að eina leiðin til að fá Israelsmenn til að hætta að taka landið þeirra sé að beita of- beldi á móti. Ef Israelsmenn verða nógu hræddir hljóta þeir að hætta, hugsar hann. Þá verður friður og pabbi Souds kemst á spít- ala þegar hann verður veikur, þarf ekki að bíða eftir hjúkrunarkonu sem býr í næstu götu og hefur engin lyf og ekki neitt. Þá getur Soud hætt að hugsa um endalok heimsins en hann er viss um að þau séu á næstu grösum. Það er sorglegt þegar 11 ára barn hugsar svona mikið um dauðann. Soud er vonlítill um framtíðina. Ófriðurinn í landi hans hefur varað svo lengi sem hann man eftir sér.

x

Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar
https://timarit.is/publication/1939

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.