Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar - 01.09.2002, Side 14
Leitin að Rajeev skilaði fjársjóði í
Indlandsstarfið!
Hálf milljón safnaðist
Gestir á styrktarsýningu að
Leitinni að Rajccv í Háskólabíói í
lok ágúst voru augljóslega ánægð-
ir með það sem þeir sáu. Veitinga-
húsið Nings og aðstandcndur
myndarinnar, Rúnar Rúnarsson
og Rirta Fróðadóttir, buðu til sýn-
ingarinnar þar sem 1000 kr. að-
gangseyrir rann til verkefna
Hjálparstarfs kirkjunnar á Ind-
landi.
Sýningar urðu fleiri, enda þurftu
tugir manna að hverfa frá styrktarsýn-
ingunni. Gengu 200 kr. af hverjum
miða á seinni sýningar til Hjálpar-
starfsins. Samtals gáfu aðstandendur
og gestir því hálfa milljón króna til
verkefna Hjálparstarfsins meðal stétt-
lausra á Indlandi.
Olík örlög
Leitin að Rajeev íjallar um íslenska
stúlku, Birtu Fróðadóttur, sem leggur
upp í leit að indverskum bernskuvini
úr Mosfellsdalnum. Hann dvaldi í
nokkur ár á Islandi en flutti burt fyrir
mörgum árum. Það eina sem Birta hef-
ur í höndunum er gamalt heimilisfang
i Trivandrum á Indlandi. Með ugg í
brjósti um að illa hafi farið fyrir
Rajeev, leggur Birta land undir fót.
Ahorfendur fylgjast með henni, í ryki
og hita, hlamma sér inn í lest frá millj-
ónaborginni Bombay, fá örlitla hvíld
frá endalausu áreiti, og búa sig undir
leitina að Rajeev í borginni þar sem
síðast spurðist til hans. Myndin er
spennandi og sýnir skemmtilegar, - og
stundum ekki svo skemmtilegar hliðar
á indversku samfélagi.
Örbirgðin áberandi
Aðdragandi þess að Hjálparstarfið
fékk að njóta var sá að þau Rúnar og
Birta vildu láta gott af sér leiða eftir að
þau luku við myndina. Þau komust
ekki hjá því að upplifa fátæktina og
eymdina sem er svo áberandi á Ind-
landi. Lítil börn hlupu á eftir þeirn og
betluðu fyrir mat, handalausir og halt-
ir höfðu engin úrræði önnur en að
þiggja ölmusu og móðir Rajeevs hélt
sig mest innandyra til þess að verða
ekki fyrir aðkasti þeirra sem litu niður
á einstæðar konur. Ohætt er að segja
að allt ævintýrið sé undri líkast, Birta
og Rúnar rétt tvítug, að leggja í slíkt
ferðalag, gera um það kvikmynd, koma
henni svo vel í fjölmiðla að aðsókn fari
fram úr sætafjölda og leggja svo
500.000 krónur til stuðnings fátækum.
Geri aðrir betur. Þau skötuhjú eru nú
komin aftur á beinu brautina, farin til
Danmerkur í nám, eftir hliðarspor til
Indlands.
Hryllilega góö stuttmynd
Á undan myndinni um Rajeev var
sýnd 5 mín. stuttmynd eftir Indverj-
ann Manish Jha. Hún hét A very, very
silent movie og hafði hlotið 1. verð-
laun á Cannes-hátíðinni í vor. Hún var
afar sterk og vakti óhug og sorg yfir
örlögum manna. Eftir myndina bauð
veitingahúsið Nings upp á indverskt
smakk í anddyri Háskólabíós þar sem
Hjálparstarfið gat kynnt verkefnin á
Indlandi. Gafst um leið skemmtilegt
tækifæri til að spjalla og sáust margir
styrktarmenn Hjálparstarfsins i hópi
bíógesta.
Ráðstefna um málefni Palestínu og Israel
Hjálparstarf kirkjunnar efnir til ráðstefnu um málefni Palest-
ínu og ísrael í byrjun september. Hún verður ókeypis og öllum
opin og er ætluð til þess að fræða um ástandið sem þar ríkir
frá sjónarhóli beggja aðila.
Biskup íslands og utanríkisráðherra munu flytja erindi ásamt
fulltrúum Hjálparstarfsins sem nýkomnir eru heim af mannrétt-
indavakt á svæðinu, þeim Aðalsteini Þorvaldssyni og Svölu
Jónsdóttur og fleirum.
Vinsamlega fylgist með auglýsingum eða hafið samband við
Hjálparstarfið í síma 562 4400 um tíma og staðsetningu.