Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar - 01.06.2015, Qupperneq 13
13
Í apríl síðastliðnum tók ég þátt í aðgerðaráætlun Changemaker í
Finnlandi fyrir komandi starfsár hreyfingarinnar þar. Við komuna
til Helsinki gafst mér fyrst stuttur tími til að ganga um bæinn
og sjá sögulegar byggingar nærri næturstað en mín beið svo 6
klukkustunda lestarferð til Sukeva, um 1000 manna sveitarfélags,
þar sem við vorum saman yfir helgina. Dagskráin samanstóð
af fyrirlestrum, vinnulotum og menningartengdum verkefnum
auk þess sem góður tími gafst í langar og góðar samræður milli
heimamanna og erlendra gesta.
Stærsta málefnið á dagskránni var um hvernig bregðast mætti við
því hvernig tilteknir hópar hvetja ungt fólk til að beita ofbeldi. Á
fundinum kom fram að ungt fólk er líklegast til að beita ofbeldi
þegar það finnur ekki aðrar leiðir til að hafa áhrif á núverandi
ástand. Mismunun, fátækt og þörf á viðeigandi menntun getur
gert það að verkum að ungmenni upplifa sig félagslega útilokuð.
Þau eru hins vegar samþykkt hjá ofstækishópum sem þau ganga
til liðs við og gangast inn á ofbeldisfulla hugmyndafræði þeirra.
Breytendur í Finnlandi vilja bregðast við vandanum með verkefni
sem kallast „Róttækir friðarsinnar“. Í hringferð sem farin verður
um landið vilja þau hafa áhrif á ungmenni með því að ræða um
áhrif ofbeldisfullra aðgerða og um hvernig hægt er að hafa áhrif
með því að beita jákvæðum aðgerðum, án ofbeldis.
Í ferðinni fékk ég bæði tækifæri til að deila því sem við gerum
hjá Breytendum á Íslandi og heyra um það sem Breytendur
gera í Finnlandi og Noregi. Ég snéri heim reynslunni ríkari og
bíð spenntur eftir að fá að taka þátt í nánara samstarfi innan
samtakanna.
Hafþór Freyr Líndal, alþjóðafulltrúi Breytenda – Changemaker
Iceland
Nánar um starf Breytenda – Changemaker Iceland má lesa á
heimasíðu hreyfingarinnar www.changemaker.is
Breytendur - Changemaker á Íslandi - er ungliðahreyfing
Hjálparstarfs kirkjunnar sem hefur það að markmiði að gera
heiminn að sanngjarnari og réttlátari stað með jákvæðum og
raunhæfum aðferðum. Hreyfingin er opin ungu fólki á aldrinum
13 – 30 ára og er hluti af alþjóðlegu Changemakerneti.
Hreyfingin var upprunalega stofnuð í Noregi árið 1992 en nú
starfar hún einnig í Finnlandi, Ungverjalandi, Hollandi, Kenýa
og Pakistan.
Að hafa áhrif án þess að beita ofbeldi
Breytendur í Finnlandi leggja á ráðin um hvernig ungt fólk getur haft áhrif án ofbeldis.