Helsingjar - 01.07.1943, Page 19
Helsingjar
Útgeíandi: Félagið „Sjálísvörn“ í Kristneshæli
ob o
1. ár
Júlí 1943
ESSXJ RITI er að vísu ekki ætlað að fylkja sér með neinum stríð-
g andi steínum í trúmálum, pótitík, bókmenntum, listum eða öðrum
dægur- og deilumálum, sem á dagskrá eru. Og því er engin þörf
hátiðlegra yfirlýsinga, stórra loforða eða öðru þvílíku tilheyrandi.
En þetta litla rit á samt sem áður sitt markmið og því er ekki að ófyrir-
synju að eyða nokkru rúmi til að fylgja því úr hlaði með nokkrum inngangs-
orðum, er skýri tilganginn með útgáfu þess.
Bókasafn okkar sjúklinga kér í Kristneshæli hefur frá þvi fyrsta átt við
tétækt að stríða. Af opinberu fé hefur það engrar hjálpar notið, fyrr en fyrir
tveimur árum, að því var veittur 300 króna árlegur styrkur. Fram að þeim
tíma gat það þvi aðeins aflað sér bóka fyrir gjafir og hjálp einstaklinga, utan
hælis og innan. Mun nánar sagt frá því á öðrum stað hér í ritinu.
Það varð því að ráði hér í vetur, að „Sjálfsvöm", félag sjúklinga Kristnes-
hælis, réðist í að gefa út þetta rit nú í sumar, til að reyna hvort eigi mundi
unnt að afla bókasafninu nokkurra tekna með því. Var samþykkt á fundi
félagsins, að ef svo vel tækist, að nokkur ágóði yrði, að gefa bókasafninu
3/5 hluta hans. En félagið sjálft er einnig féþurfi, ef það á einn eða annan
hátt á að geta orðið sjúklingunum hér til gagns eða gleði.
Eini möguleikinn til að ágóði, sem nokkru næmi, yrði aí þessu riti, nú á
tímum, — þegar útgáfukostnaður er allt að því sex sinnum hærri en fyrir
stríð, — var sá, að afla sér sem mestra auglýsinga.
Þetta hefur nú farið svo, fyrir ágætar og drengilegar undirtektir auglýs-
enda, að víst má telja, að um góðar tekjur verði að ræða fyrir bókasafnið og
félagið, ef sala á ritinu verður tilsvarandi. Og við efumst ekki um, að svo
verði, og að undirtektir landsmanna almennt, verði ekki síðri en hinna mörgu
verzlana og iðnfyrirtækja, sem auglýst hafa.
Útsala á ritinu verður í ílestum þorpum landsins og öllum stærri bæjum,
og væntum við þess fastlega, að upplagið þrjóti fyrr en síðar.
Með það fyrir augum hcfum við því reynt að gera innihald ritsins svo
læsilegt og við flestra hæfi, sem okkar efni stóðu til, og það sem á það
skortir er því orsök getuleysis, en ekki viljaskorts. En þess ber þá jafnframt
að gæta, að við, sem kosnir vorum í útgáfustjórn og ritnefnd, ákváðum að
freista þess, að fá allt lesmálsefni ritsins innan hælisins og leita engrar utan-
aðkomandi aðstoðar þar um, nema þá til þeirra, sem hér hefðu einhvern tíma
dvalið, svo sem höfundur kvæðisins „Nýtt vor“.
Og verður svo lesandinn að dæma, hversu til hefur tekizt.
Þá er það, að við nefnum þessa „Helsingja" okkar ársrit; því sú er hug-
myndin, að reyna framvegis á hverju sumri, að gefa út eitt hefti þeirra i
sama tilgangi og nú hefur verið gert. Því þó að allt bendi nú til þess, að fyr-
ir góðviljaðan skilning auglýsenda og annarra á málefninu, verði allveruleg-
ur hagnaður af þessu 1, ári ritsins, — þá er þess að gaata, að sú upphæð
LANDSBðKASAFN
, .V* i o 2
~TÍLANT3~