Helsingjar - 01.07.1943, Síða 28

Helsingjar - 01.07.1943, Síða 28
10 Helsingjar íslenzka alþýðumannsins, sem þarna hefur verið að verki. Námaskarð, auðn og öskulag. Er nokkur lýsingáeinuumhverfi jafnömurleg og þessi? Hvað er dökkgrátt hraunið hjá slíkri sjón? Það býður óendanleg til- brigði við hvert fótmál, hæðir og dældir, hella og skorur, hin- ar furðulegustu myndir. Jafnvel gróðurinn er þar ekki útilokað- ur. En hér á þessum stað virðist allt dæmt til jressa sama auðnu- leysis um aldir alda. Það líður fögnuður um mann allan, þegar komið er austur úr skarðinu, við að sjá gróðurinn í hlíðinni, þar sem eyðibýlin Dalshús standa. Það var aðeins skamnra stund dvalið við brennisteinshverina, þessa kraumandi pytti, sem frá leggur svo fúla pest, að óvönum verður flökurt af. í hlíðinni upp af hverasvæðinu er litauðgi óvenju fjölbreytt. Það þótti því tilvalið að taka hér eina lit- mynd. Þegar komið var aftur upp í Skarðið, var numið staðar ör- litla stund, horft til fjallanna í suðaustri og austur eftir hraun- inu, þar sem vegurinn til Hóls- l jalla liggur og fyrirhugað er að verði í framtíðinni aðalleiðin til Austurlandsins. Eftir vel ,,heppnaða“ máltíð, sem neytt var í ofurlitlu rjóðri austúr og upp af Reykjahlíð, var haldið heim að því virðulega setri og fenginn bátur út í Slútnes, því að enginn getur komið á þessar stöðvar að sum- arlagi án j)ess að skoða þann stað. Og það var ekki óveglegur farkostur, sem fimmmenningun- um var léður, sjálfur „Dettifoss“. En rétt er, ef til vill ,að taka jaað fram, að jaað var stærsta skipið í flota Reykjahlíðarbóndans, en ekki H/F Eimskips. Já, Slútnes. ....það ljómar sem ljós yfir sveit, öll landsins blóm, sem ég fegurst Ieit, um þennan lága laufgróna reit, sem lifandi gimsteinar skína....“, segir Einar Ben. í sínu fagra kvæði um þenna stað. Og skáld- ið hefur sig til flugs, finnur hljóða strauma, sem renna um grein og stofn,fara um sinn eigin barm, bera sig yfir víðáttu him- ingeymsins og skynjar þráðinn, sent tengir sköpunarverkið sam- an í eina ætt, sem ekki einasta er voldug, heldur ....dauðleg, eilíf og ótalþætt, um afgrunns og himins slóðir. . . .“. Ekkert er jafnorkandi á hið viðkvæmasta, guðlega í mannin- um og blómin, þetta dásamlega skart jarðarinnar, senr andar frá sér óendanlegri nrildi og veitir frið og unað hverjum þeinr, sem ekki er of stoltur til jress að lúta . niður að þeinr í auðnrýkt hjart- ans. í rúnra klukkustund reikuðu fimmmenningarnir um Slútnes,

x

Helsingjar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helsingjar
https://timarit.is/publication/1979

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.