Helsingjar - 01.07.1943, Blaðsíða 31
Helsingjar
13
ÚR ENDURMINNINGUM FARMANNSINS:
AKROPÓLIS.
Hér segir íslenzkur farmaður frá komu
sinni til AJtenu og för sinni um grafreit
hinna ódauðlegu forn-grísku meistara-
verka í byggingum og myndlist. Hann
fylgist með gömlum, grískum leiðsögu-
manni um Akropólishæðina, hina forn-
helgu miðstöð hellenskrar menningar. A
myndinni til hægri gnæfa rústir Parjten-
ons hofsins við loft.
Skijiið rennur inn á höfnina í
Píreus. Þetta er mikið skijralægi,
umlukt stórum haínargörðum.
Hér og þar liggja stór liafskip
við landfestar. Okkar skip leggst
við uppfyllingu innarlega í höfn-
inni. Þetta er rétt eftir hádegið,
sól hæst á lofti og molluhiti; —
enginn andvari svalar andrúms-
loltið. Á hafnarbakkanum strita
sveittir uxarnir tveir og tveir
saman við að draga stóra vagna
fullfermda af vörum.
Norðurlandabúanum finnst
þarna alls staðar sóðalegt um-
horfs. Djúpt ryk á öllum götum
í kringum höfnina, sem þyrlast
upp undan fóturn manna og
dýra og leggst eins og kæfandi
mökkur fyrir vitin, að ógleymdri
þeirri plágu, sem stingflugurn-
ar valda með biti sínu. — Mér
virðast þær áleitnari við okkur
aðkomumennina en við Grikk-
ina, sem eru að vinna við höfn-
ina. Enda hlýtur það að minnsta
kosti að vera nýnærni fyrir þær
að fá að sjúga íslenzkt blóð.
Það er sunnudagur næsta
morgun, svo skijrverjar geta far-
ið og litazt um. Ég og tveir af
félögum mínum ákváðum að
fara upp til Aþenu, skoða Akro-
pólis og litast um á hinum forn-
frægu slóðum.
Og klukkan 10 þennan sunnu-
dagsmorgun stígum við upjr í
járnbrautarlest í Píreus. Þetta er
heldur fornfáleg lest, en skröltir
þó af stað með skellum og há-