Helsingjar - 01.07.1943, Page 34

Helsingjar - 01.07.1943, Page 34
16 Helsingjar brutust hér inn í landið og rændu það og er sagt að þeir hafi flutt hurt öll verðmæti hofsins, en notað sjáifa bygging- una fyrir hænahús sinnar trúar. Síðasta eyðileggingaraldan, sem flæddi yfir þetta veglega must- eri hinnar forngrísku menning- ar og trúarbragða, var, þegar Feneyingar sátu um Akropólis- hæðina og lcigðu hofið að miklu í rústir með stórskotahríð. Á síðari árum hefur svo nokkuð verið unnið að endurreisn þess, en ltægt hefur því verki miðað áfram. Við yfirgefum svo þennan fornhelga stað í fylgd með leið- sögumanni okkar, því við eigum eftir að skoða fleira í þessum grafreit hellenskrar gullaldar, sem svo illa hefur verið leikinn af erkióvini mannkynsins, styrj- öldum um auð og völd. I norðurhlíð Akropólishæðar- innar, stendur Erekþejonhofið, sem einnig var Iielgað gyðju horgarinnar, Pallas Aþenu. Þar var geymt eitt elzta líkneski hennar, skorið í tré, og þar við hofið óx sá heilagi olíuviður, er gyðjan lét spretta, er hún deildi við sjávarguðinn um landið. Og þar er jafnframt saltvatns- uppsprettulindin, er spratt fram, þegar sjávarguðinn laust bergið með þrífleini sínum. Erekþejonhofið er byggt í íonisk 'm hyggingarstíl, súlurn- ar standa á fæti; — eru jafngildar upp en breiða sig svo út í eins konar krónu efst og hvílir þakið þar á. í einni útbyggingunni er þó vikið frá íoniska stílnum. í staðinn fyrir súlur, Iiafa verið reistar sex höggmyndir af nökt- um konum, og á höfði þeirra hvílir þakbyggingin, en sjálf standa líkneskin á upphækkaðri veranda (verönd). Sömu sögu er að segja um þetta hof eins og Parþenon. Það er allt meira og rninna í rústum og í aumkunar- verðu ástandi, jafnfagurt og stíl- hreint sem það mun hafa verið á (ildum áður. — Viljið þið ekki líta á högg- myndasafnið. Það er hérna í húsinu fyrir neðan, segir gamli leiðsögumaðurinn við okkur. Og við göngum niður að lágu húsi sem er Jrar í brekkunni. Við göngum inn á eftir leið- sögumanni okkar. Hér er mikið af meira og minna brotnum höggmyndum. Margar eru þær handleggja- og fótalausar og jafnvel höfuðlausar. „En þær hafa aldrei verið krypplingai eða vanskapaðar", segir gamli maðurinn kíminn og stoltur í senn. En nú eru þetta allt orðin eintóm brot, heldur hann áfram. Mestur hlutinn af okkar fegu'rstu fornu höggmyndum eru okkur glataðar að eilífu. Eitthvað af ])eim hefur verið gelið til Bretlands og prýða nú listasafnið (British Museum) í London; — miklu hefur verið

x

Helsingjar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helsingjar
https://timarit.is/publication/1979

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.