Helsingjar - 01.07.1943, Page 36

Helsingjar - 01.07.1943, Page 36
18 sé hin eina rétta Sókratesargröf. En þið megið trúa mér. Ég veit eins ntikið og nokluir annar um það efni. — Það getur enginn sagt með vissu hvar hún er. Við tökum orð öldungsins trúanleg og göngum niður hæð- ina. I bratta klettabungu, sem varð á leið okkar, voru höggvin spor í klöppina með jöfnu milli- Itili. Og við spyrjum gamla fylgdarmanninn til hvers þau séu eða hafi verið. — Þau voru höggvin þarna í klöppina fyrir fórnardýrin, svo þau gætu fótað sig, Jregar Jtau voru leidd til blóts hér upp á hæðina, er svar hans. Og við nánari athugun á gerð sporanna og afstöðu þeirra hvort til annars verður okkur ljóst, að liann fari hér með rétt mál. Svo höldum við áfram niður eftir þar til við komum að bekknum, þar senr gamli leið- sögumaðurinn sat, ])egar við hittum hann fyrst. Hér nemur hann aftur staðar um leið og hann segir: Nú þurfið Jtið ekki minnar leiðsögu lengur. Við spyrjum hvað leiðsögn hans kosti og fáum svar hans. En á meðan hann er að koma skild- ingunum fyrir í pyngju sinni, spyr ltann hverrar Jrjóðar við séum. Við erum íslendingar, svörum við og reynum jafnframt að skýra fyrir honum eftir beztu Helsingjar getu hvar það land sé á hnett- inum. Ég hef aldrei séð íslendinga áður, svo ég viti til, segir hann svo eftir að hafa ldustað á út- skýringar okkar, og þið verðið líklega líka þeir síðustu, — þeir fyrstu og síðustu, — Jdví að mér skilst að íslendingar Italdi sig mest norður í kuldanum eftir nafninu að dæma, segir öldung- urinn. Og þarna kveðjum við hann og höldum svo áfram ofan eftir. En Jregar við erum komnir spöl- korn niður stíginn, lít ég um öxl og sé hvar hann stendur þarna, gamall og lotinn í herðum, styð- ur báðum höndum fram á staf- prikið og horfir í áttina upp á Akropólis. Það fer einkenni- lega angurvær samúðarkennd um luig minn Jrcgar ég virði hann fyrir mér þarna sem hann stendur svo álútur og einmana undir.hinni hrynjandi háborg. Þessi fátæklegi og þreytti ölcl- ungur, sem styðst fram á staf- prikið sitt og starir á rústirnar af listaverkum og helgidómum forfeðra sinna. En jafnframt verður mér ljóst, að þessi gamli maður á sínar stóru og ómetanlegu raunabæt- ur í þeirri vitneskju, að frelsis- lnigsjónir, listir og vísindi for- feðra lians hafa gengið í gegn- um aldirnar sem menningararf- ur til allra vestrænna þjóða.

x

Helsingjar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helsingjar
https://timarit.is/publication/1979

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.