Helsingjar - 01.07.1943, Blaðsíða 46

Helsingjar - 01.07.1943, Blaðsíða 46
28 Helsingjar inga. Einn minnist þá ef til vill eins og annar hins. Hér hafa t. d. dvalið um stundar- sakir ýmsir þjóðkunnir menn. Sum- ir stutt og sumir lengi. En hefur þá dvöl þeirra haft nokkra minnisverða atburði í för með sér? Hefur nokkuð það skeð hér í sambandi við þá eða veru þeirra, sem annað tveggja orsak- aði röskun eða breytingu á heildar- svip hælislífsins, -— eða teygði afleið- ingar sínar út í líf sjálfs þjóðfélags- ins? — Eg efast um það. Hingað hafa þeir komið til að leita hvíldar og hjúkrunar. Og ég býst við að flest- ir reyni að skilja skikkjur stríðs og starfs eftir fyrir utan, þegar þeir stíga hér inn fyrir þröskuld. —--------Nei, — fólkið sem dvalið hefur hér árum saman hefur ekki gleymt neinu. — Hér skeði aldrei neitt. Og þó, þrátt fyrir allt þetta tóm- lega svipleysi daganna, er glaðlegur hýrleiki yfir viðmóti og fasi þessa fólks, sem dvalið hefur hér árum saman, það leikur brosbirta um augu og varir, þegar minnst er á horfinn tíma, eins og í hug þeirra sé einhver hlýr bjarmi yfir öllu því liðna. Og þær eru líka vafalaust margar sólskinsstundirnar, sem hafa ljómað um hug þeirra sjúku í hvíta húsinu í Kristnesbrekkunni. Þegar sumardag- arnir hvelfa bláheiðum himni yfir ey- firzka dalinn, gróðrarangandi loftið streymir svalandi inn um alla glugga og dyr og sólargeislarnir loga á grænkandi hlíðum eða glitra í bláum straumi elfunnar fyrir neðan heim- kynni þeirra. Og það er fleira, sem skapar sól- skinsstundir, í hug íbúanna í „bið- salnum" norðlenzka. Stundir, sem varpa blæbrigðum á hringrás dagsins. Gestakomur sjaldséðra vina eða vandamanna, hin árlega skemmtiferð sumarsins í Vaglaskóg, fram í Eyja- fjarðardali — eða til annarra fagurra staða nærsveitis. Og svo síðast en ekki sizt: heimsóknir ýmissa lista- manna orðsins eða tónanna! Flestir þekktustu, íslenzku söngvararnir okk- ar hafa einhvern tíma komið hingað, og margir ágætir upplesarar, fyrirles- arar og leikarar; — jafnvel heilir kórar og að minnsta kosti einu sinni sjálft Leikfélag Akureyrar með fleiri þátta leikrit. Það var þegar Haraldur Sigurðsson var þar með sinn þreytt Þorlák. — Og það var viðburður, sem margir muna vel. Ef til vill þarfnast engir meira en við, sem búum á þess- um stöðum, að leita gleymskunnar nokkur augnablik í heimi hlátra glaðværðar. En þessi sólskinsaugnablik megna þó aðeins að varpa ljóma og litbrigð- um einnar líðandi stundar, á hina stöðugu og óbreytanlegu hringferð daglega lífsins. En á gang hennar hafa þau engin áhrif. Þau hverfa því sjónum manna fyrr en varir í óbreyt- anleik daganna. Og stundvís, knýandi bjölluhljómurinn heldur áfram eftir sem áður, að boða fyrirskipanir sín- ar. — Stundin líður og ljóminn hverf- ur og svo kemur ný nótt. . . . Og svo eru þeir líka ávalt margir, sem ekki fá notið þessara augnablika. A bak við hinar tölusettu dyr, eru alltaf einhverjir, sem stara spyrjandi augum, gljáandi af sótthita, út í tóm- ið — út þangað sem dyr hinnar dimmbláu, óræðu eilífðar eru að opn- ast þeim.----------- Og greinin um minningar frá Krist- neshæli var aldrei skrifuð. Hugmyndin fjaraði út í tilbreyting- arlausri hrynjandi daganna eins og svo margt annað. I stað hennar urðu til þessar hug- leiðingar mínar um hringrás og bjölluhljóma, um leiftur líðandi stundar og svip hinna sviplausu daga í „biðsölum dauðans".
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Helsingjar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helsingjar
https://timarit.is/publication/1979

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.