Mosfellingur - 11.07.2024, Page 4

Mosfellingur - 11.07.2024, Page 4
www.lagafellskirkja.is kirkjustarfið - Bæjarblað í rúm 20 ár4 MOSFELLINGUR Næsta blað kemur út 27. ágúst - fyrir bæjarhátíðiNa mosfellingur@mosfellingur.is HelgiHald næstu vikna Í sumar verða sumarmessur í Mosfells- bæ, Kjalarnesi og Kjós. Sumarmessurn- ar eru hluti af samstarfsverkefni kirkn- anna á þessu svæði með fjölbreyttu helgihaldi. Nánari upplýsingar má finna á Facebook- og Instagram-síðunni: Sumarmessur í Mosfellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. sunnudagur 14. júlí Kl. 20: Kvöldmessa í Lágafellskirkju. Sr. Henning Emil Magnússon. sunnudagur 21. júlí Kl. 20: Kvöldmessa í Lágafellskirkju. Sr. Arndís Linn. sunnudagur 28. júlí Kl. 20: Kvöldmessa í Lágafellskirkju. Sr. Arndís Linn. sunnudagur 11. ágúst Kl. 20: Kvöldmessa í Lágafellskirkju. Sr. Arndís Linn. sunnudagur 18. ágúst Kl. 20: Kvöldmessa í Lágafellskirkju. Sr. Henning Emil Magnússon. sunnudagur 25. ágúst Kl. 20: Kvöldmessa í Lágafellskirkju. Sr. Henning Emil Magnússon. Miðvikudagur 28. ágúst Kl. 20: Tónleikar í Lágafellskirkju í túninu heima. Nánar auglýst síðar. Rafræn fermingarskráning fyrir vorið 2025. Upplýsingar og skráning á heimasíðunni okkar. lagafellskirkja.is Endilega fylgdu okkur á samfélagsmiðlum Ólöf Sívertsen ráðin sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs Ólöf Kristín Sívertsen hefur verið ráðin í starf sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs Mosfellsbæjar. Staðan var auglýst í vor og bárust 35 umsóknir. Ólöf er með B.Ed. gráðu, kennsluréttindi og leyf­isbréf í leik-, grunn- og framhaldsskóla frá Kennara- háskóla Íslands, MPH gráðu í lýðheilsufræðum frá Háskólanum í Reykjavík og diplóma á meistara- stigi í stjórnun menntastofnana. Ólöf býr yf­ir 20 ára farsælum ferli á vettvangi fræðslumála og hefur hún í störfum sínum öðlast víðtæka þekkingu á skóla- og frístundaum- hverf­i sveitarfélaga. Undanfarin fjögur ár hefur Ólöf starfað sem verkefnastjóri mats og lýðheilsu á fagsviði grunnskóla hjá skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar. Ólöf býr í Mosfellsbæ, hefur mikinn áhuga á útivist og gegnir um þessar mundir starf­i forseta ferðafélags Íslands. Þá hefur hún tekið virkan þátt í foreldrastarf­i í Lágafellsskóla og verkefninu Heilsuefl­andi Mosfellsbær um árabil. Ný grenndarstöð við Bogatanga í notkun Gámum hefur verið fjölgað á grenndarstöðinni við Bogatanga auk þess sem aðgengi og umhverf­i hefur verið bætt. Grenndarstöðin fl­okkast nú sem stærri grenndarstöð með sex gáma fyrir málm, gler, textíl, pappír/pappa, plast og skila- gjaldsskyldar umbúðir. Á næstunni verður trjám plantað á svæðinu til að fegra það enn frekar. Miðvikudaginn 12. júní voru afhentir styrk- ir úr Klörusjóði en markmið sjóðsins er að stuðla að nýsköpun og framþróun í skóla- og frístundastarf­i í Mosfellsbæ. Í sjóðinn geta sótt kennarar, kenn- arahópar, aðrir fagaðilar sem starfa við skóla/frístund í Mosfellsbæ, einn skóli eða fl­eiri skólar/fagaðilar í sameiningu sem og fræðslu- og frístundasvið í samstarf­i við skóla. Veittir eru styrkir einu sinni á ári úr sjóðnum. Heildarframlag sjóðsins árið 2024 eru þrjár milljónir. Að þessu sinni hlutu eft- irfarandi verkefni styrk úr sjóðnum: verkleg vísindi, varmárskóli Verkefnið mun auka verklega kennslu í náttúrugreinum í Varmárskóla með fjöl- breyttu námsefni sem auðveldar kennurum að nálgast viðfangsefnin á skapandi hátt. Með þessum styrk að upphæð 500.000 kr. mun Varmárskóli fjárfesta í námsefni sem efl­ir kennslu í eðlisfræði og stærðfræði. námskeið í markmiðasetningu fyrir elstu nemendur grunnskólans, fé­lags­ miðstöðin Bólið í samstarfi við náms­ og starfsráðgjafa grunnskólanna Boðið verður upp á námskeið í sjálfsefl­- ingu og markmiðasetningu fyrir nemend- ur í 10. bekk. Markmiðið er að ungmenni vinni með eigin gildi, styrkleika, áhugasvið, drauma og framtíðarsýn. Inntak verkefnis- ins snýr að andlegri og félagslegri vellíðan ungmenna og fellur bæði undir forvörn og heilsuefl­ingu. Verkefnið hlaut 600.000 kr. styrk. söngur á allra vörum, leikskólinn Hlíð Verkefnið mun efl­a notkun tónlistar til að stuðla að málþroska ungra barna. Tekin verður upp söngbók leikskólans bæði í hljóð- og myndformi og efnið gert aðgengilegt starfsmönnum, foreldrum og öðrum áhugasömum. Styrkur að upphæð 250.000 kr. er hugsaður til að hefja vinnuna og koma verkefninu af stað. steaM­kennsla á öll stig grunnskólans, Helgafellsskóli Í verkefninu verður innleidd og efl­d STEAM-nálgun í kennslu á öllum stigum grunnskólans, og gæti hún náð til 5 ára leikskólabarna. Styrkur að upphæð 700.000 kr. verður nýttur til að kaupa bæði tæki og námsefni til að efl­a kennara og nemendur í STEAM-kennslu og hvetja til skapandi og gagnrýninnar hugsunar. aukin útikennsla, leirvogstunguskóli Í verkefninu verður útbúin aðstaða á leikskólalóð til að auka útinám með því að skapa útieldhús, vatnabraut og drullu- mallsvæði. Markmið verkefnisins er að auka útikennslu, leikefni og leikaðstæður í útiveru. Styrkurinn að upphæð kr. 200.000 er hugsaður til að koma verkefninu af stað í vinnslu innan skólans í samstarf­i við for- eldrasamfélagið. Flipp Flopp, kvíslarskóli Verkefnið mun styðja Kvíslarskóla við að taka mikilvægt skref til að efl­a raungreinar með kaupum á smásjám, stuðningi við kennara og þróun kennsluhátta. Flipp fl­opp verkefnið, sem hófst fyrir þremur árum, hefur bætt kennsluhætti og stuðlað að innleiðingu leiðsagnarnáms í skól- anum. Verkefnið fékk styrk að upphæð 400.000 kr. Frá fræi til afurðar, leikskólinn Hlíð Verkefnið mun veita börnum og starfs- fólki tækifæri til að sá fræjum og fylgjast með þeim vaxa og dafna. Þannig fá þau að upplifa hringrás náttúrunnar og sjá hvernig eitt lítið fræ getur orðið að afurð, kryddi, grænmeti, ávexti eða plöntu sem þau geta síðar notið. Styrkurinn 350.000 kr. er hugs- aður til að koma verkefninu af stað með t.d. gróðurkössum á lóðinni. Nafn sjóðsins Klöru­sjóðu­r er til heið- u­rs Klöru­ Klængsdóttu­r (1920-2011). Klara útskrifaðist frá Kennaraskóla Íslands árið 1939 og hóf sama ár kennslu­ við Brú- arlandsskóla hér í bæ og starfaði hún alla sína starfsævi sem kennari í Mosfellsbæ. Markmiðið að stuðla að nýsköpun og framþróun í skóla- og frístundastarfi í Mosfellsbæ styrkir úr klörusjóði afhentir afhending í listasalnum Stofutónleikaröð Gjúfrasteins er haf­in en hún hóf fyrst göngu sína árið 2006. Tónlist skipti Halldór Laxness miklu máli frá fyrstu tíð. Bæði rit- aði hann um tónlist af ýmsum tilefnum og eins lék hann á píanó, ekki síst verk Johann Sebastian Bach. Í tíð Halldórs og Auðar voru ávallt haldnir tónleikar í stofunni þar sem fjöldi listamanna kom fram, jafnt innlendir sem erlendir. Stofutónleikar eru haldnir alla sunnudaga í sumar og hefjast kl. 16, aðgangseyrir er 3.500 kr. Hægt er að sjá nánari dagskrá á www. gljufrasteinn.is. víðáttur laxness – tríó Hjartar Jóhannssonar Sunnudaginn 14. júlí fer fram sannkölluð djassveisla í stofunni á Gljúfrasteini. Þá munu þeir Hjörtur Ingvi Jóhannsson, Andri Ólafsson og Magnús Tryggvason Eliassen leika frumsamda tónlist Hjartar sem innblásin er af þemum, stöðum og persónum í höf- undarverki Halldórs Laxness. Auk þess verða á dagskránni nokkrar perlur sem samdar hafa verið við ljóð Laxness. Tónleikaröð Gljúfrasteins hóf göngu sína árið 2006 • Alla sunnudaga í stofunni kl. 16 stofutónleikar í allt sumar gljúfrasteinn í mosfellsdal

x

Mosfellingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.