Mosfellingur - 11.07.2024, Síða 6
- Heiðursborgarar Mosfellsbæjar6
Birgir D. Sveinsson fyrrverandi skólastjóri
Varmárskóla og stofnandi skólahljómsveit-
ar Mosfellsbæjar var útnefndur heiðurs-
borgari Mosfellsbæjar við hátíðlega athöfn
þann 17. júní.
„Ég er snortinn og þakklátur,“ sagði Birg-
ir við afhendinguna en hann er heiðraður
fyrir hans mikla framlag til tónlistar- og
menningarlífs sem og uppeldismála í
Mosfellsbæ.
Birgir D. Sveinsson er fæddur 5. apríl
1939 í Neskaupstað. Hann lauk lands-
prófi í Vestmannaeyjum og kennaraprófi
árið 1960. Samhliða námi stundaði Birgir
tónlistarnám og lék á blásturhljóðfæri.
Birgir fluttist til Mosfellsbæjar að afloknu
kennaraprófi og var kennari við Varmár-
skóla árin 1960-1977. Hann var yfirkennari
1977-1983 og skólastjóri Varmárskóla 1983-
2000.
Þúsundir notið leiðsagnar Birgis
Birgir var fenginn til að kenna drengjum
á blásturshljóðfæri haustið 1963 og úr varð
drengjahljómsveitin, síðar Skólahljómsveit
Mosfellsbæjar, sem spilaði fyrst opinber-
lega við vígslu sundlaugarinnar að Varmá,
þann 17. júní 1964. Skólahljómsveitin hefur
starfað óslitið í 60 ár.
Þá stóð Birgir enn fremur að því að efna
til tónlistarkennslu í barnaskólanum sama
haust og það starf þróaðist í að stofnaður
var tónlistarskóli í Mosfellssveit haustið
1966.
Birgir var stjórnandi Skólahljómsveitar
Mosfellsbæjar í 40 ár eða fram til ársins
2004. Hljómsveitin hefur þjónað tónlistar-
legu uppeldi fjölda barna og ungmenna í
Mosfellsbæ en jafnframt verið bæjarhljóm-
sveit og komið fram við hin ýmsu hátíðlegu
tækifæri.
Það eru þúsundir barna og ungmenna
sem hafa notið leiðsagnar Birgis, sem kenn-
ara og tónlistarmanns og umsögn fyrrum
nemenda er samhljóma um þau góðu áhrif
sem Birgir hefur haft á þeirra þroskabraut.
Birgir er sagður hafa verið einstakur kenn-
ari, þolinmóður, umhyggjusamur og hafa
veitt sérhverju barni athygli sína.
Sæmdur stórriddarakrossi 2005
Birgir var formaður Samtaka íslenskra
skólahljómsveita í 20 ár en samtökin voru
stofnuð í Mosfellsbæ. Hann var útnefndur
heiðursfélagi samtakanna árið 2019. Birgir
fékk viðurkenningu frá bæjarstjórn Mos-
fellsbæjar fyrir frábær störf árið 1994.
Árið 2005 var Birgir sæmdur stórridd-
arakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir
tónlistarkennslu við hátíðlega athöfn á
Bessastöðum.
Birgir D. Sveinsson heiðraður á 60 ára afmæli Skólahljómsveitar Mosfellsbæjar 17. júní • „Snortinn og þakklátur“
Fjórði heiðursborgari Mosfellsbæjar
Halla Karen Kristjánsdóttir formaður bæjarráðs
Mosfellsbæjar, Birgir Dagbjartur Sveinsson
heiðursborgari Mosfellsbæjar og Regína
Ásvaldsdóttir bæjarstjóri Mosfellsbæjar.
Heiðurshjónin Birgir D. Sveinsson
og Jórunn Árnadóttir fyrir utan
Varmárskóla að lokinni hátíðlegri
athöfn á 17. júní 2024.
Á myndinni fyrir neðan má sjá hljóm-
sveitina spila opinberlega í fyrsta sinn við vígslu
Varmárlaugar 17. júní 1964. Birgir stofnandi og
stjórnandi er lengst til hægri á myndinni.
Laus störf
í Mosfellsbæ
Öll laus störf hjá Mosfellsbæ
og stofnunum má sjá og sækja
um á ráðningarvef bæjarins:
www.mos.is/storf
aðrir heiðursborgarar mosfellsbæjar
Nóbelsverðlaunaskáldið
Halldór Kiljan Laxness (1902-
1998) var útnefndur heiðurs-
borgari Mosfellsbæjar árið 1972.
Halldór bjó í Mosfellssveit og síðar
Mosfellsbæ nánast alla sína tíð og
sótti efnivið í margar sögur sínar
í heimasveitina. Hann ólst upp að
Laxnesi í Mosfellsdal, kenndi sig
alla tíð við bernskustöðvar sínar
og settist að í dalnum sem fulltíða
maður. Hann sá bernskuár sín í
dalnum í hillingum og í nokkrum bóka sinna sækir hann
efniviðinn í Mosfellsbæ, einkum í Innansveitarkroniku og
endurminningabókinni Í túninu heima.
Halldór Kiljan laxness
Jón M. Guðmundsson
(1920-2009), fyrrverandi
oddviti sveitarstjórnar
Mosfellshrepps var útnefndur
heiðursborgari Mosfellsbæjar
á fundi bæjarstjórnar þann
30. ágúst 2000. Í ákvörðun
bæjarstjórnar var vísað til
þess að með þessum heiðri
hafi verið lagt fram þakklæti
sveitarfélagsins og viður-
kenning á hinu mikilvæga
framlagi Jóns til uppbyggingar sveitarfélagsins en Jón
var oddviti Mosfellshrepps 1962-1981 og hreppstjóri
1984-1990.
jón M. GuðMundsson
Salome Þorkelsdóttir (f. 1927)
var gerð að heiðursborgara
Mosfellsbæjar 2007. Salome var
kjörin í hreppsnefnd Mosfells-
hrepps árið 1966 og sat þar til
1982. Hún var aðalgjaldkeri Mos-
fellshrepps 1972-1979, varaoddviti
1978-1981 og oddviti 1981-1982.
Árið 1979 var hún kjörin á Alþingi
og sat á Alþingi til ársins 1995.
Salome gegndi stöðu forseta efri
deildar Alþingis 1983-1997, forseta
sameinaðs þings 1991 og forseta Alþingis 1991-1995. Árið
1993 var Salome sæmd stórriddarakrossi hinnar íslensku
fálkaorðu fyrir störf í opinbera þágu.
saloMe ÞorKelsdóttir
Úrslitaleikur
EM í Hlégarði
sunnudaginn kl. 19:00