Mosfellingur - 11.07.2024, Qupperneq 12
- 17. júní í Mosfellsbæ12
M
yn
di
r/
Ra
gg
iÓ
la
Að vanda var haldið upp á þjóðhátíðardag-
inn með glæsibrag í Mosfellsbæ.
Dagskráin hófst með hátíðarguðþjónustu
í Lágafellskirkju undir stjórn sr. Hennings
Emils Magnússonar. Sigurður Hreiðar,
Mosfellingur og fyrrverandi ritstjóri, flutti
hátíðarræðu og stóðu skátar frá skátafélag-
inu Mosverjum heiðursvörð við kirkjuna.
Við Varmárlaug var haldið upp á 60 ára
vígsluafmæli laugarinnar og 60 ára af-
mæli Skólahljómsveitar Mosfellsbæjar, en
hljómsveitin lék í fyrsta skipti opinberlega
við vígslu laugarinnar og hefur nú starfað
óslitið í 60 ár. Við sama tækifæri fór fram
útnefning heiðursborgara Mosfellsbæjar.
Við Kjarna var boðið upp á sérstakar lýð-
veldisbollakökur í tilefni af 80 ára afmæli
íslenska lýðveldisins og þar var hægt að
nálgast bókina Fjallkonan – „Þú ert móðir
vor kær“, en hvoru tveggja var gjöf forsæt-
isráðuneytisins til landsmanna.
Ástrós Hind í hlutverki fjallkonu
Skátarnir leiddu skrúðgöngu frá Mið-
bæjartorgi að Hlégarði þar sem hátíðar-
dagskráin fór fram að viðstöddum miklum
fjölda bæjarbúa. Skólahljómsveit Mosfells-
bæjar tók á móti skrúðgöngunni með lúðra-
blæstri. Bæjarstjóri Mosfellsbæjar, Regína
Ásvaldsdóttir, fór með hátíðarræðuna og
fjallkonan var Ástrós Hind Rúnarsdóttir.
Hún flutti Litla Ísland eftir Ólöfu Sigurð-
ardóttur frá Hlöðum. Ástrós hefur nýlokið
prófi í bókmenntafræði frá Háskóla Íslands
og var umfjöllunarefni lokaverkefnis henn-
ar í bókmenntafræðinni ritstörf Ólafar.
Meðfram námi sínu hefur Ástrós starfað í
Bókasafni Mosfellsbæjar.
Fjölskyldudagskrá og kaffihlaðborð
Bolli og Bjalla úr Stundinni okkar kynntu
fjölskyldudagskrá sem var lífleg að vanda.
Leikfélag Mosfellssveitar bauð upp á atriði
úr Línu Langsokk, Árni Beinteinn og Sylvía
sungu og dönsuðu og börnin tóku virkan
þátt. Þá mætti Bangsímon frá Leikhópnum
Lottu og VÆB bræðurnir Matthías Davíð
og Hálfdán Helgi. Á Hlégarðstúninu voru
hoppukastalar og fleira í boði fyrir börn.
Árlegt og glæsilegt kaffihlaðborð Aftur-
eldingar var vel sótt og keppt var um titilinn
Sterkasti maður Íslands á Hlégarðstúni sem
er árleg keppni skipulögð af Hjalta Árna-
syni, betur þekktum sem Hjalta Úrsus.
Það var sannarlega líf og fjör í bænum og
veðrið hið ágætasta.
Þjóðhátíðardeginum fagnað
kynnarnir bolli og bjalla
með fjallkonunni 2024
skátar standa heiðursvörð um fjallkonu,
bæjarstjóra og línu langsokk
stungið sér til afmælis-
sunds í 60 ára varmárlaug leikfélagið leiðir skrúðgönguna
lögreglan sýnileg
prúðbúin fjölskylda
bekkurinn þéttsetinnsvipmyndir frá 17. júní