Mosfellingur - 11.07.2024, Side 18

Mosfellingur - 11.07.2024, Side 18
Einar Ingi Hrafnsson var ráðinn framkvæmdastjóri Aftureldingar þann 1. maí. Hann þekkir vel til félagsins enda sjálfur verið þar iðkandi, þjálfari og sjálfboðaliði og mun því reynsla hans nýtast honum vel í starfi. Einar segir Aftureldingu vera stærstu uppeldismiðstöð Mosfellsbæjar enda flest börn bæjarins sem koma þar við, en í mislangan tíma þó. Hlutverk félagsins sé að skapa umhverfi fyrir þau öll. Einar Ingi er fæddur í Reykjavík 16. september 1984. Foreldrar hans eru Sonja Ingibjörg Einarsdóttir fv. leikskólastjóri og Hrafn Stefánsson rafvirkjameistari. Bróðir Einars Inga er Heiðar Númi f. 1989. Góðir tímar með afa og ömmu „Ég er alinn upp í Reykjahverfinu í Mos- fellsbæ, þar liggja mínar æskuslóðir og for- eldrar mínir búa þar enn. Það var virkilega gaman að búa upp í byggðum, ég hefði hvergi annars staðar viljað búa, mikið af krökkum á sama aldri og nóg um að vera. Maður hjólaði í gryfjunum, smíðaði kofa með strákunum og svo var farið á fótbolta- æfingar á Tungubökkum. Fjölskylduútilegurnar í gamla góða A tjaldinu með mömmu og pabba klikkuðu ekki, svo maður tali nú ekki um sumarfríin til Mallorca. Það voru líka góðir tímar með afa og ömmu á Breiðdalsvík og á Selfossi, þar var margt brallað.“ Maður tengdi við golfið „Ég gekk í Varmárskóla og Gagnfræða- skóla Mosfellsbæjar og mér fannst mjög gaman í báðum þessum skólum. Í byggð- arbekknum var sterkur kjarni sem náði vel saman og við erum enn bestu vinir í dag. Það var eitthvað við skólann sem var töfrandi, skíðaferðirnar, Reykir, Bólið, Út- varp Einar og önnur ferðalög. Á sumrin var maður á íþrótta- námskeiðum Aftureldingar og æfandi fótbolta en svo tók vinnu- skólinn við. Það var eftirminni- legur tími, þá var maður oft úti á Hlíðarvelli. Maður tengdi við golfið sem verður vonandi mitt framtíðarsport næsta áratuginn eða svo,“ segir Einar og brosir. „Ég starfaði líka eitt sumar með pabba í rafmagninu og það var mjög lærdómsríkt.“ Handboltinn alltaf númer eitt „Ég útskrifaðist sem stúdent frá Borgar- holtsskóla, þetta voru góð ár og þarna eign- aðist maður vini fyrir lífstíð. Félagslífið tók dágóðan sess, með mennta- skólaböllum, innanskóla ræðu- og söngvakeppnum og svo auðvitað handboltinn, hann var alltaf númer eitt. Á sumrin starfaði ég á Dominos, KFC og í Áhaldahúsi Mosfellsbæjar við allt frá dýraeftirliti til ruslatínslu.“ Mikið á ferð og flugi Eiginkona Einars Inga er Þórey Rósa Stef- ánsdóttir mannauðs- og launasérfræðingur hjá flugfélaginu Air Atlanta og landsliðs- kona í handbolta. Börn þeirra eru Arnór Bjarki f. 2016 og Sara Sonja f. 2020. „Við fjölskyldan erum mikið á ferð og flugi á sumrin, förum í sund, út að hjóla og svo höfum við gaman af því að ferðast bæði innanlands með tjaldvagninn og svo að fara í ferðir erlendis.“ Markmiðið var alltaf að spila erlendis „Sumarið 2009 var ferðinni heitið til Þýskalands í atvinnumennsku í handbolta. Það má segja að draumar mínir hafi ræst en markmið mitt var alltaf að spila erlendis. Við fluttum til Nordhorn og bjuggum þar í 2 ár, þetta var skemmtilegur tími. Það- an fluttum við til Danmerkur, til norður Jótlands en enduðum svo á að vera 4 ár í Noregi þar sem sonur okkar fæddist. Varðandi veru okkar erlendis er hægt að segja að okkur var alls staðar vel tekið, við kynntumst mörgu fólki og skildum eftir okkur spor á sama tíma.“ Íþróttir sameina fólk „Þeir titlar sem unnust í Noregi og sögu- leg undanúrslit sem enduðu með minnsta mun gegn stórliði Álaborgar í Danmörku er eitthvað sem ég gleymi aldrei og er þakklát- ur fyrir að hafa fengið að taka þátt í. Vera mín erlendis styrkti mig á margan hátt sem einstakling sem mun nýtast mér alla tíð. Ég er búinn að vinna með liðsfélög- um, fólki frá mismunandi löndum, þar sem markmiðið var alltaf skýrt, að hámarka ár- angur og gera það saman sem lið. Það sem íþróttir gefa fyrst og fremst er að sameina fólk og skapa vináttu og gleði. Við fluttum heim eftir átta ára veru erlendis og ég hóf störf hjá heildverslun Halldórs Jónssonar ehf. Það kom svo ekk- ert annað til greina en að fara að spila aftur með mínu liði Aftureldingu og loka þannig hringnum með sögulegum bikarameist- aratitli eftir langþráða bið á lokatímabilinu mínu.“ Kemur með ákveðna sýn til starfa Einar Ingi er með BSc próf í viðskipta- fræði frá Háskólanum í Reykjavík og tók síðan master í stjórnun og stefnumótun. Í Noregi starfaði hann sem cost controller í olíubransanum og innan fjármálateymis og öðlaðist þar dýrmæta reynslu. Einar var ráðinn framkvæmdastjóri Aftureldingar þann 1. maí. Aðspurður um nýja starfið segir Einar: „Ég elska félagið mitt, það bjó mig til og ég á því mikið að þakka. Ég kem með ákveðna sýn til starfa, mig langar að virkja betur samvinnu innan félagsins, milli eininga og deilda. Ég trúi því af einlægni að saman sem heild sé félagið í fararbroddi í íslensk- um íþróttum. Við eigum frábæra þjálfara, flottustu sjálfboðaliðana og orku innan samfélagsins til að stefna hærra. Með þeirri framtíðar- aðstöðu sem áform eru um og lengi hefur verið beðið eftir munum við taka stærri skref í átt að betra og flottara félagi.“ Bjóðum upp á fjölbreytt starf „Afturelding er ein stærsta uppeldismið- stöð Mosfellsbæjar, hér koma flest börn bæjarins við, í mislangan tíma þó, hlutverk okkar er að skapa umhverfi fyrir þau öll. Umhverfi íþróttanna er stórkostlegt, sama á hvaða aldri þá eiga íþróttir að virkja einstaklinginn, styrkja hann bæði félagslega og líkamlega. Það verða vissu- lega ekki allir afreksmenn, en Afturelding þarf að vera vettvangur fyrir alla, við erum fjölgreinafélag. Sem framkvæmdastjóri Aft- ureldingar þá langar mig að halda áfram því góða starfi sem unnið hefur verið og styrkja grunnstoð bæjarins til góðra verka, finna jafnvægi og tengingu milli uppeldisstarfs og afreksstarfs. Við bjóðum upp á fjölbreytt starf fyrir íbúa bæjarins, af því megum við vera stolt því það er eitt sem við íbúar Mosfellsbæjar eigum sameiginlegt og það er að við styðj- um öll Aftureldingu, ekki satt?“ segir Einar Ingi og lítur á mig og brosir. - Mosfellingurinn Einar Ingi Hrafnsson18 Myndir: Ruth Örnólfs, Raggi Óla, Thelma Arngrímsdóttir og úr einkasafni. Fjölskyldan, Arnór Bjarki, Þórey Rósa, Einar Ingi og Sara Sonja. MOSFELLINGURINN Eftir Ruth Örnólfsdóttur ruth@mosfellingur.is Einar Ingi Hrafnsson framkvæmdastjóri Aftureldingar kemur með ákveðna sýn til starfa Afturelding er ein stærsta uppeldisstöð Mosfellsbæj- ar, hér koma flest börn bæjarins við, í mislangan tíma þó. Íþróttir sameina fólk og skapa vináttu Hver kom þér síðast á óvart og hvernig? Gamli vinnustaðurinn kvaddi mig með viskíflösku og kúbuvindli, sem ég á að hafa uppi á skrifstofu til að fagna framtíð- arsigrum og áföngum Aftureldingar. Hver er þín óvenjulegasta lífsreynsla? Ég bjó erlendis í 8 ár, Þýskalandi, Danmörku og Noregi. Bestu kaup sem þú hefur gert? Ætli það sé ekki pizzaofninn sem við keyptum þegar við fluttum til Þýskalands 2009, var elskaður og dáður af öllum sem fengu að smakka, sá skilaði sínu. Hvað er það skemmtilegasta sem þú hefur gert? Fullt af skemmtilegum stundum, en ætli bikarmeistaratitillinn síðasta vor sé ekki verðskuldað á toppnum. Að fá að lyfta bikarnum fyrir framan bæinn minn, eftir alla vinnuna og ekki síst eftir þessa löngu bikarbið hjá klúbbnum var ólýsanlegt. Hvar lætur þú klippa þig? Minn bestir maður Gunni Mall (Viking- blendz) sér um að klippa mig. HIN HLIÐIN ungur að árum brúðkaupsfín afturelding bikarmeistari 2023

x

Mosfellingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.