Mosfellingur - 11.07.2024, Page 22

Mosfellingur - 11.07.2024, Page 22
 - Fréttir úr bæjarlífinu22 Þá er Barnadjass í Mosó lokið í annað sinn og er þar með orðið að árlegri hefð hér í bænum. Hátíðin heppnaðist frábærlega. Alls tóku yfir 30 börn á aldrinum 7-15 ára þátt í há- tíðinni og auk þess voru áhorfendur hátt í 400 samtals. Hljóðfæraleikararnir voru frá Mosfellsbæ, Ísafirði, Reykjavík, Hafnarfirði, Kópavogi, Noregi og Færeyjum. Börnin sem spiluðu á tónleikunum áttu þó rætur að rekja mun víðar, svo sem til Svíþjóðar, Kína, Palestínu, Afganistan, Hollands, Nígeríu og Litháen. Tvennir tónleikar í Hlégarði Haldnir voru fernir tónleikar, þar af tvennir í Hlégarði. Anna Sigríður Guðna- dóttir bæjarfulltrúi opnaði hátíðina en einnig talaði Cecilie Willoch sendiherra Noregs á opnunartónleikunum og þá með- al annars um þetta frábæra norsk-íslenska samstarf sem hátíðin er og við viljum sjá halda áfram að vaxa og dafna. Auk tónleikanna var haldið opið sum- arnámskeið fyrir áhugasama krakka um djass og spuna. Námskeiðið var vel sótt og voru krakkarnir flestir mjög ánægðir og áhugasamir. Gestgjafarnir á aldrinum 9-13 ára Djasskrakkar, hljómsveit skipuð fimm börnum á aldrinum 9-13 ára úr Mosfellsbæ, var gestgjafi hátíðarinnar og stóðu krakk- arnir sig með mikilli prýði í því hlutverki bæði á sviði og fyrir utan sviðið. Þau frumfluttu nýtt lag, Blár krummi, sérstaklega samið fyrir hátíðina af Karli Olgeirssyni tónlistarmanni sem einnig tók þátt í flutningnum. Þetta heppnaðist stórvel og munu Djasskrakkar taka Bláan krumma með sér á Kids in jazz, norska barnadjass- hátíð núna í ágúst. Hátíðinni var svo lokað af Regínu Ást- valdsdóttur bæjarstjóra. Hátíðin var styrkt af Mosfellsbæ, Kiwan- isklúbbnum Mosfelli, Barnamenningar- sjóði og Ölgerðinni og vill hátíðin koma á framfæri kærum þökkum fyrir stuðninginn og hlakkar til að endurtaka leikinn að ári. Orðið að árlegri hefð • 30 börn á aldrinum 7-15 ára Barnadjass í Mosó heppnaðist vel Haruna Koyamada, Odd André Elveland og Guðrún Rútsdóttir hafa borið hitann og þungann. að loknum tónleikum blásið til veislu ALLT UM MÓTIÐ UMFI.IS UNGMENNAFÉLAG ÍSLANDS UNGMENNASAMBAND BORGARFJARÐAR BORGARBYGGÐ UNGLINGA LANDSMÓT UMFÍ BORGARNESI 1.-4. ÁGÚST FJÖLSKYLDUHÁTÍÐ FYRIR 11–18 ÁRA. TÓNLEIKAR OG SKEMMTUN Á KVÖLDIN.

x

Mosfellingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.