Mosfellingur - 11.07.2024, Blaðsíða 24
- Aðsendar greinar24
Þverholti 3 - Sími: 566-6612
FÓTAAÐGERÐASTOFA
MOSFELLSBÆJAR
Leirvogstunga 27, 270 Mosfellsbæ, sími: 864 6600
Gólfefna lausnir
fyrir heimili
og fyrirtæki
Þjónusta við mosfellinga
www.fastmos.is
586 8080
Sími:
Dreymir þig um
eigið húsnæði?
Hafðu
samband
Svanþór Einarsson
Löggiltur fasteignasali
Fasteignasala Mosfellsbæjar • Þverholti 2 • S. 586 8080 • www.fastmos.is
www.bmarkan.is
Smiðjuvegi 60 (rauð gata) Kópavogi - Sími 557 2540
Hj‡lmar Guðmundsson
Lšggildur hœsasm’ðameistari
s:6959922
fhsverk@gmail.com
Íslensk stjórnvöld hafa nýlega sett fram
aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra
fólk sem ber nafnið „Gott að eldast“
sem byggir á nýrri hugsun við ört
stækkandi hóp í samfélaginu.
Í þeirri áætlun er leitast eftir að
breyta og bæta þjónustu við eldra fólk,
tryggja þjónustu við hæfi á réttu þjón-
ustustigi og fjölga þeim sem taka virkan
þátt í samfélaginu. Lögð er áhersla á heilbrigða
öldrun með andlegri, líkamlegri og félagslegri
heilsueflingu. Sérleg áhersla er á að auka félags-
lega virkni og draga úr félagslegri einangrun og
einmanaleika eldra fólks.
Félagsleg einangrun einstaklinga er vaxandi
vandamál á heimsvísu. WHO Alþjóðaheilbrigð-
ismálastofnunin hefur vakið athygli á alvarleika
málsins og metur félagslega einangrun sem ógn
við lýðheilsu á pari við reykingar, ofneyslu áfeng-
is og hreyfingarleysi. Félagsleg einangrun og
einmanaleiki eru einnig tengd kvíða, þunglyndi,
sjálfsvígum og heilabilun og geta aukið líkur á
hjarta- og æðasjúkdómum og heilablóðfalli.
Á sex svæðum á landinu hafa verið ráðnir
tengiráðgjafar, sem hafa m.a. það hlutverk
að hafa yfirsýn yfir bjargir í nærsamfélaginu,
auka félagsleg samskipti einstaklinga
og hópa í viðkvæmri stöðu, vinna að
betri tengingu á milli þjónustuaðila
og auka samtal milli félagsþjónustu,
heilsugæslu, félagasamtaka, trúfélaga,
sjálfboðaliðasamtaka og fleiri aðila.
Hugmyndin er að virkja nærum-
hverfið og taka betur utan um fólk sem
er félagslega einangrað eða einmana.
Hlutverk tengiráðgjafa er þannig að stíga inn í
og finna lausnir sem henta hverjum og einum.
Það er mikilvægt að draga úr félagslegri ein-
angrun sem hefur áhrif bæði á einstaklinga og
samfélagið. Aukin félagleg tengsl efla bæði and-
lega og líkamlega heilsu, auka lífsgæði, vellíðan
og bæta samfélagið.
Undirrituð er tengiráðgjafi fyrir Mosfellsbæ,
Kjalarnes og Kjós og starfar á velferðarsviði
Mosfellsbæjar. Velkomið er að hafa samband
við mig varðandi ráðgjöf og upplýsingar um þá
þjónustu sem er í boði.
Guðleif Birna Leifsdóttir
Tengiráðgjafi á velferðarsviði Mosfellsbæjar
gudleifl@mos.is
s. 525-6700
Farsæl efri ár
Mosfellsbær varð formlega að kaupstað
9. ágúst 1987 og fagnaði því 35 ára kaup-
staðarafmæli á liðnu ári. Á liðnum ára-
tug eða svo hefur íbúum sveitarfélagsins
fjölgað mikið. Það kemur okkur ekki á
óvart – því það er gott að búa í Mosó.
Nú þegar íbúum sveitarfélagsins
hefur fjölgað þurfum við sem samfélag
að velta því fyrir okkur, hvernig viljum
við halda áfram og hvernig viljum við þroskast?
Hvað viljum við sjá í okkar samfélagi eða erum
við bara sátt við það eins og það er?
Myndum við ekki vilja að fleiri legðu leið sína
í okkar fallega bæ til að skoða, njóta og staldra
við?
Hvað eru aðrir að gera?
Ástæður þessara vangaveltna og þessarar
greinar eru þær að um liðna helgi lagði ég leið
mína í Hafnarfjörð og þar streymdi fólkið að.
Fólk var annars vegar að sækja tónleika Hunds í
óskilum og hins vegar bæjar- og tónlistarhátíð-
ina Hjarta Hafnarfjarðar, en sú hátíð er haldin
vikulega yfir hásumarið. Fyrr í sumar var haldin
hin árlega Víkingahátíð sem fjölmargir sóttu og
að auki er boðið upp á menningar- og heilsu-
göngur, alla miðvikudaga, sem eru unnar í sam-
starfi nokkurra stofnana bæjarins. Svo einhverjir
viðburðir séu nefndir. Þessir viðburðir eru ekki
allir skipulagðir af bænum - en þeir eiga það
sameiginlegt að fólk er að leggjast á eitt um að
bjóða upp á margvíslega, skemmtilega dagskrá
sem fær fólk til að koma í bæinn og kynnast
því sem boðið er upp á. Eftir sitja heimsóknir
og tekjur sem liggja hjá fyrirtækjum í
bænum.
Hvernig væri að við hugsuðum þetta
fyrir komandi ár?
Við höfum upp á svo margt að bjóða.
Við gætum boðið upp á skipulagðar
göngur á fellin, jafnvel einn eða tvo
daga þar sem öll fellin væru tekin í einu
eða tvennu lagi. Við gætum líka boðið
upp á hjólaferðir, söguferð um Álafosskvos,
göngutúr um Reykjahverfið og fræðst um her-
námið. Við gætum fengið tónlistarfólk bæjarins
til að halda tónleika t.d. í Lágafellskirkju, á tún-
inu við Hlégarð eða á Miðbæjartorginu. Við gæt-
um verið með útileikföng á Miðbæjartorginu.
Einnig væri hægt að vera með ratleik sem gengi
í gegnum bæinn. Markaðurinn í Mosskógum
hefur dregið marga að og nú er lag að einhver
taki við boltanum þar.
Margt af þessu er gert á Menningu í mars eða
á bæjarhátíðinni en við viljum fá fleiri í bæinn
en þá einu helgi. Með markvissu skipulagi og
vinnu allra aðila værum við að koma bænum á
kortið sem áfangastað, ekki bara svefnbæ sem
maður keyrir í gegnum. Af þessari vinnu leiðir
að fleiri staldri við, sem þýðir að meiri þjónustu
er hægt að bjóða upp á í bænum.
Við höfum upp á svo margt að bjóða í okkar
umhverfi sem væri gaman að sýna öðrum og
myndi lífga upp á sumarlífið okkar.
Dagný Kristinsdóttir
Bæjarfulltrúi Vina Mosfellsbæjar.
Hvernig viljum við þroskast
sem samfélag?