Mosfellingur - 11.07.2024, Side 26

Mosfellingur - 11.07.2024, Side 26
Heilsumolar gaua - Aðsent26 NáttúruíþróttabæriNN Mosfellsbær er hugsanlega það bæjarfélag á Íslandi sem er best fallið til þess að verða paradís þeirra fjölmörgu sem stunda náttúruíþróttir af einhverju tagi. Ég sé fyrir mér fjallahjólastíga í fellunum okkar fjölmörgu, miskrefj- andi stíga þannig að allir geti fengið áskoranir við hæfi, reynsluboltar sem byrjendur. Stígarnir myndu tengjast þannig að hægt væri að fara í lengri ferðir. Þeir myndu líka tengjast yfir í Esjuna, sem má segja að sé nokkurs konar móðir fellanna okkar og þótt Esjan tilheyri strangt til tekið ekki Mosfellsbæ, er hún hluti af okkur. Við sjáum hana alla daga og heimsækjum hana oft. Mosfelling- arnir Magne og Ásta hafa sýnt fram á í Reykjadal við Hveragerði hvernig er hægt að byggja upp fjallahjólastíga á umhverfisvænan hátt með því að nýta kindastíga, slóða eftir traktora og aðrar leiðir sem myndast hafa í gegnum árin. Stígarnir falla vel inn í umhverfið og koma í veg fyrir að fólk hjóli út um allar trissur. Fellin eru að sjálfsögðu líka frábær í gönguferðir og utanvegarhlaup. Við höfum líka vötn og sjóinn og þar liggja mörg tækifæri. Vatnasport fer vaxandi víða um heim. Sund og sjóböð hafa aldrei verið vinsælli og sífellt fleiri fara reglulega á kajak eða á standbretti. Uppblásanleg standbretti eru bæði orðin ódýrari og betri en þau voru fyrir nokkrum árum. Það fer svo lítið fyrir þeim að það er meira að segja hægt að skella þeim á bakið (í þar til gerðri tösku) og hjóla með þau að næsta vatni eða sjó. Við erum á réttri leið. Erum að halda viðburði sem hvetja fólk til þess að fara út og hreyfa sig í nátt- úrinni. Við erum með Tindahlaupið, Álafosshlaupið, KB þrautina, Drullu- hlaupið, Fellahringinn og það nýjasta í flórunni, Hundahlaupið, sem haldið verður í fyrsta sinn í Mosfellsbæ í tengslum við Í túninu heima í ár. Njótum náttúrunnar! Guðjón Svansson gudjon@kettlebells.is Í tengslum við lagningu gangstígs upp Reykjaveg að Suður-Reykjum var ákveðið að reyna að staðsetja Reykjalaug sem lenti undir vegi um 1940. Mosfellsbær óskaði eftir aðstoð Jarð- vísindastofnunar Háskóla Íslands og Minjastofnunar Íslands við að finna hina sögufrægu Reykjalaug með jarðsjá. Af hundruðum lauga og hvera sem voru eitt sinn í Mosfellssveit var hún þeirra þekkt- ust. Í öllum helstu ferðabókum frá 18. öld og fram á okkar daga var minnst á Reykja- laug. Á korti frá 1771 sem fylgir Ferðabók Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar er getið þriggja örnefna í Mosfellssveit; Guf- uness, Reykjalaugar og Mosfells. Þorvaldur Thoroddsen getur þess í riti sínu Lýsing Íslands að á suðvesturlandi fyrir sunnan Esju séu kunnastar laugar hjá Reykjum í Mosfellssveit og Laugarneslaug sem Reyk- víkingar noti til þvotta. Þarna er laugunum í Reykjahverfi og Reykjalaug í raun jafnað við þvottalaugarnar í Laugarnesi. Síðar kom í ljós mun meiri orka í Reykjahverfi en við Þvottalaugarnar. Laugin var hlaðin úr grjóti um 3,5 metrar í þvermál og dýpst um 2,5 metrar, en vatnshæð um einn metri. Oddný Helgadóttir húsfreyja á Ökrum (f. 1913) sagði að leirtau og lín hefði verið þvegið í lauginni en ekki annar fatn- aður. Heitt vatn var leitt úr Reykjalaug í fjósið á Reykjahvoli. Þessi má geta að árið 1908 var bærinn á Suður-Reykjum fyrsta íbúðarhús á Íslandi sem hitað var upp með rennandi hvera- vatni. Vatnið kom úr sk. Tunnuhver sem stóð í mynni Skammadals. Fyrsta gróðurhúsið á Íslandi var einnig sett upp á Suður-Reykjum á árunum 1923- 1924. Á fjórða áratugnum var farið að bora eftir heitu vatni á Reykjum, sem svo var flutt í leiðslum til Reykjavíkur. Við það hurfu flestar laugar og hverir af yfirborðinu í Reykjahverfi. Mokað var ofan í hina frægu Reykjalaug og vegur lagður yfir. Hinn 11. mars sl. mættu Ármann Hösk- uldsson jarðfræðingur Jarðvísindastofn- unar Háskóla Íslands, Kristinn Magnússon fornleifafræðingur hjá Minjastofnun Ís- lands og Diana Alvarez doktorsnemi í jarð- fræði til að leita Reykjalaugar með jarðsjá. Með hinni öflugu jarðsjá mátti greinilega sjá manngerðar hleðslur - Reykjalaug var á sínum stað undir veginum. Fróðlegt og skemmtilegt væri að Mos- fellsbær með stuðningi Orkuveitunnar og landeigenda léti grafa upp hina frægu Reykjalaug í tengslum við lagningu gang- brautar upp að Suður-Reykjum. Þannig væri hinu sögulega og merka nátt- úruundri komið til nútímans, en með virkjun jarðhitans á Reykjum hefur heita vatnið skil- að landsmönnum milljörðum króna í formi varmaorku. Rétt er að minna Mosfellinga og landsmenn alla á uppruna hinna miklu auðæfa og ekki grafa þau í jörðu. Magnús Guðmundsson Formaður Sögufélagi Kjalarnesþings Reykjalaug fundin Leitað að Reykjalaug með jarðsjá á veginum milli Suður-Reykja og Reykjahvols. Ármann Höskuldsson jarðfræðingur og rannsóknaprófessor, Kristinn Magnússon fornleifafræðingur hjá Minjastofnun Íslands og Diana Brum D Silveira G Alvarez doktorsnemi í jarðfræði við Háskóla Íslands. Reykjalaug eins og listakonan Hanna Bjartmars Arnardóttir sá hana fyrir sér. Laugin þornaði þeg- ar jarðboranir hófust á fjórða áratug 20. aldar.

x

Mosfellingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.