Mosfellingur - 11.07.2024, Síða 28

Mosfellingur - 11.07.2024, Síða 28
Sendið okkur myndir af nýjum Mos- fellingum ásamt helstu upplýsingum á netfangið mosfellingur@mosfellingur.is Mateó Þór Cárdenas Auðunsson fæddist 24. desember á Landspítalan- um í Reykjavík. Hann vó 3.820 kg og var 51 cm langur. Foreldrar eru Valeria Cárdenas Hernández and Auðunn Bjarki Haraldsson. Í eldhúsinu Milana skorar á Elísu Hörn Ásgeirsdóttir að deila með okkur næstu uppskrift í Mosfellingi Flammekueche pítsa - Heyrst hefur...28 Milana Katchalina deilir að þessu sinni með okkur uppskrift sem kitlar bragðlauka þeirra sem elska lax! Flammekueche (Tarte flambée) með lax! Full- komið ef það er föstudagskvöld og ykkur langar í pítsu sem tekur 10-15 mín að búa til. Hráefni: • Hreinn rjómaostur - 200 g • Niðurskorinn reyktur lax - 1 pakki • Furuhnetur - 2-4 matar- skeiðar • Klettasalat - 75 g poki • Sætt sinnep • Parmesanostur • Vefjur grillaðar frá Mission tortilla - 2 Aðferð: Hitið ofninn í botn (250 gráður), þegar hann er orðinn sæmilega heitur setjið vefjur í ofninn til að brúna þær í 4-6 mín. Fylgist vel með - ef þær verða of brúnar þá breytast þær í kex. Ristið aðeins furuhneturnar á meðan á pönnu, engin olía eða smjör. Takið út fallegar vefjur, smyrjið þær vel með rjómaosti, svo kemur laxinn og ristaðar furuhnetur ofan á. Setjið þær aftur í ofn í 5- 7 mín. Fylgist aftur vel með og takið út þegar laxinn er orðinn vel bleikur. Þetta gúmmelaði er borið fram með klettasal- ati og parmesanosti ofan á og sætu sinnepi sprautað yfir. Bjór eða Riesling frá Alsace eða Þýskalandi smellpassar með þessari pítsu. Njótið!  Verðiykkuraðgóðu! mann- eskjan í brúnni Komið þið sæl, kæru sveitungar, mig minnir að þegar ég var á þessari síðu síðast og var að hella úr röflskálum mínum hér í Mosfellingi hafi ég verið að fjalla um komandi forsetakosn- ingar. Þá var ég að reyna að sleppa að kalla til blaðamannafundar og notaði þetta svið til að tilkynna að ég myndi ekki bætast í hóp hundruð Íslendinga sem byðu sig fram í embætti forseta Ísland. Þetta gekk nú furðulega áfalla- laust fyrir sig og ætlunarverki lokið. Ekki var að sjá að nokkur einasti maður hafi verið ósammála þessari yfirlýsingu og ekki nokkur maður eða kona grátið í koddann það kvöld. En þessi ósköp eru liðin hjá og kom í ljós að ný manneskja mun gegna embættinu bráðum og verður forsetavígslan haldin í ágúst hvort sem okkur líkar betur eða verr eða hvern við kusum. Enn eitt árið þurfti blessaður Ástþór Magnússon að láta í minni pokann en hann gefst ekki upp, eins og kakkalakki sem hefur verið trampað á aftur og aftur heldur hann áfram og reynir við Bessastaði. Eða eins og máltækið segir allt er þegar 40 sinnum er reynt ... eða eitthvað svoleiðis. En nú varð uppi fótur og fit þegar kom í ljós að næsti forseti lýðveld- isins væri gift og að í fyrsta skiptið mun maki sitjandi forseta vera af Adamsætt og hvað skyldi þá kalla kauða. Sumir vilja halda í gamlar hefðir og heimta það að hann Björn skuli nefnast forsetafrú, aðrir vilja að hann verði kallaður forsetabóndi og enn aðrir forsetamaður. Svo eru þeir neikvæðu sem telja hann vera bara óheppinn að vera fastur þarna á Bessastöðum og enginn viti hvað á að kalla karlgreyið. Eigum við ekki bara að láta Árna- stofnun eða mannanafnanefnd sjá um þetta áður en það sýður upp úr og þessar deilur leysast upp í ofbeldi. Því ekki viljum við að hann gangi undir nafninu besefinn á Bessastöðum … nei það má ekki. Högni snær hjá milönu Ísabella Lea kom í heiminn 20. apríl 2024. Foreldrar eru Guðrún Sól Gunn- arsdóttir og Rögnvaldur Ágúst Ragnarsson Long. Systkini: Emilía Ýr úrslitaleikur EM í Hlégarði sunnudaginn kl. 19:00 heyrst hefur... ...að Mosfellingar séu orðnir yfir 14.000 talsins samkvæmt nýjustu tölum Þjóðskrár. ...að búið sé að opna nýja þvottastöð við N1 í Háholti. ...að rafmagnslaust hafi verið í nánast öllum Mosfellsbæ að morgni 17. júní en komst þó á aftur hálftíma fyrir hátíðlega athöfn við Varmárlaug. ...að úrslitaleikur EM verði sýndur á risatjaldi í Hlégarði á sunnudaginn. ...að til standi að opna veipsjoppu í glerhýsinu í miðbænum sem áður hýsti kaffihúsið Gloríu. ...að 389 tilboð hafi borist í 50 lóðir við Úugötu í Helgafellshverfi sem Mosfellsbær auglýsti á dögunum. ...að Laddi ásamt hljómsveit ætli að starta stuðinu á bæjarhátíðinni í lok ágúst í Hlégarði. ...að mosfellsku Norsararnir Ómar og Ester hafi gift sig á dögunum. ...að knattspyrnumaðurinn Jason Daði sé búinn að skrifa undir hjá Grimsby. ...að Kristín Ýr og Jónas Bjarni hafi haldið upp á tvöfalt fimmtugsafmæli um síðustu helgi. ...að Mosfellingurinn Eyþór Wöhler sé búinn að stofna diskó-tvíeykið HubbaBubba með Kristali Mána sem strax er farið að dæla út hitturum. ...að Weetosmótið á Tungubökkum heiti nú Gæðabakstursmótið. ...að Fellahringurinn verði endurvak- inn Í túninu heima. ...að Dana sé tekin við sem forstöðu- maður íþróttamiðstöðvarinnar að Varmá. ...að Simmi og Hafrún hafi verið að koma heim úr turtildúfuferð til Tenerife. ...að Hundahlaup UMFÍ verði haldið á Reykjalundartúninu í bæjarhátíðar- vikunni í lok ágúst. ...að Folda og Lolli séu að fara halda brúðkaupsveislu um helgina. ...að verið sé að leita að nýju nafni á Listasal Mosfellsbæjar. ...að Ási „Riddari“ Jónsson sé fimmtugur í dag. ...að hjólbrautin í Ævintýragarðinum sé að verða tilbúin og hafi fengið nafnið Flækjan. ...að íbúar í Mosfellsdal séu komnir með nóg af hraðakstri og séu búnir að mála sjálfir merkingar á veginn. ...að Kjúllinn snúi aftur Í túninu heima með risaballi og bjórgarði. ...að Sif Elías og Erlingur eigi von á strák í haust. ...að Hekla Daða sé útskrifuð úr lögregluskólanum. ...að Áróra og Úlla sé komnar heim í Aftureldingu fyrir næsta vetur. ...að Arnar Dagur hafi farið holu í höggi á Hlíðavelli í sumar. ...að Greta Salóme og Elvar eigi von á sínu öðru barni.

x

Mosfellingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.