Leikskrár Þjóðleikhússins - 17.10.1952, Page 11

Leikskrár Þjóðleikhússins - 17.10.1952, Page 11
1897, að leiksvið og salur er mjög áþekkt að stærð og var í „Mechanics“ áður en ungfrú Horniman lagði fram fé til breyt- inga. En jafnvel eftir breytinguna eða síðustu ár Abbey-leik- hússins, var margt keimlíkt með Iðnó, þó var leiksviðið aðeins dýpra og áhorfendasalur með svölum tók samtals 560 áhorf- endur. í þessu húsi fór fyrsta leiksýningin fram 27. des. 1904. Lady Gregory var viðbrugðið fyrir dugnað og stjórnsemi, en mest var um það vert, að hún var ágætt leikritaskáld og hafði oftast á takteinum ný viðfangsefni handa leikhúsinu. Samvinna milli hennar og ungfrú Horniman fór út um þúfur frá fyrstu stundu þegar af þeirri ástæðu, að ekki var hægt að telja ung- frúna eiganda leikhússins, vegna búsetu í öðru landi, en Lady Gregory talin eigandi í leyfisbréfi yfirvaldanna til handa leik- húsinu. Seinna kippti ungfrú Horniman að sér hendinni um allan stuðning við leikhúsið, þegar henni fannst stjórn þess sýna litla tillitssemi við Breta, en þá var leikhúsreksturinn lcominn á rekspöl og leikhúsið búið að koma undir sig fótunum fjárhagslega. llíkisstyrk fékk leikhúsið fyrst árið 1925 og' var það enn Lady Gregory, sem samdi urn það mál við þáverandi fjármálaráðherra Irlands, Ernst Blythe, en hann varð síðar leikhússtjóri og var hann einn meðal crlendra gesta, sem boðið Leiksvið A bbey-leiJchússins.

x

Leikskrár Þjóðleikhússins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Leikskrár Þjóðleikhússins
https://timarit.is/publication/2016

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.