Leikskrár Þjóðleikhússins - 21.11.1952, Blaðsíða 8

Leikskrár Þjóðleikhússins - 21.11.1952, Blaðsíða 8
Abbey-leikhúsið í Dyflinni. ar, Drottningar-leikhúsið, verið afhent leikhússtjórninni til um- ráða. Allt fyrir það fær rnaður ekki varizt þeirri hugsun, þarna í sviðnu anddyri Abbey-leikhússins, þar sem þögular myndir skáldanna bíða flutnings til glæsilegra sala, að liðin sé stund þess frægasta frama, tjaldið fallið í hinnzta sinn fyrir eitt merki- legasta leiksvið álfunnar. Vafalaust á Abbey-leikhúsið ný og mikil verkefni fyrir höndum, en leikhús skáldanna verður ekki opnað aftur, er nú minning ein. Leikhús skáldsins. Það gefur ef til vill sannari rnynd af Abbey-leikhúsinu eins og það var, því að William Butler Yeats stofnaði leikhúsið og til dauðadags var hann lífið og sálin í allri starfsemi þess. En leikhúsið hélt ekki einasta á loft skáld- verkum hans, heldur safnaði undir merki sitt stórum flokki skálda til fyrirmyndar öðrum leikhúsum með menningar- og bókmenntaleg sjónarmið. Þegar 50 ár voru liðin frá stofnun Hins írska bókmenntalega leikhúss, sem síðar varð Irska þjóð- leikhús-félagið, árið 1949, hafði leikhúsið sýnt rúmlega 400 leik- rit eftir írska höfunda, en aðeins milli 40 og 50 eftir útlenda. Hinar ströngu kröfur Yeats til efnisvalsins áttu samt ekkert skylt við þjóðrembing, þá var honum dælt, er nýr höfundur kom [ 6 ]

x

Leikskrár Þjóðleikhússins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Leikskrár Þjóðleikhússins
https://timarit.is/publication/2016

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.