Leikskrár Þjóðleikhússins - 01.02.1957, Síða 8
Giovanni Guareschi
aJHiMií!!
■ i
. ’’ . m
T^'
Giovanni
Guareschi
skrifar um
sjálfan sig:
Líf mitt byrjaði 1. mai 1908. Þegar ég fæddist, hafði móðir
mín verið kennari í barnaskólanum í níu ár, og það var hún
til ársins 1949. I þakklætisskyni fyrir kennslustarfið gaf sóknar-
presturinn henni, í nafni þorpsbúa, forláta vekjaraklukku. Eftir
50 ára kennslu í skólum, þar sem hvorki var rafmagnsljós né
rennandi vatn, heldur mergð af mývargi og skorkvikindum.
bíður móðir mín nú eftir því, að ríkið taki ef til vill einhvern
tíma til greina umsókn hennar um eftirlaun, og styttir sér
stundir við að hlusta á vekjaraklukkuna, sem þorpið gaf henni.
Um það leyti sem ég fæddist, hafði faðir minn mikinn áhuga
á alls kyns vélum, stórum og smáum, frá sláttuvélum til
grammófóna. Hann hafði þá gríðarmikið yfirskegg, eins og það.
sem ég hef nú sjálfur undir nefinu. Hið stórfenglega yfirskegg
í 6 ]