Leikskrár Þjóðleikhússins - 01.02.1957, Qupperneq 10

Leikskrár Þjóðleikhússins - 01.02.1957, Qupperneq 10
pappír, sem varð til þess að blaðið fékk óvenju skuggalegt útlit. Eg er fæddur í Parma nálægt Pófljótinu. Þeir, sem eru ættaðir frá þessum landshluta eru flestir sauðþráir og því tókst mér að verða aðalritstjóri Bertoldo. Af orsökum, sem ég réði ekki við, brauzt stríðið út, og dag nokkurn, árið 1042. fékk ég mér ríflega í staupinu, því bróðir minn hafði farið til rússnesku vígstöðvanna og ég frétti ekkert af honum. Um nótt- ina æddi ég um götur Milanoborgar og hélt hrókaræður, sem fylltu margar blaðsíður í lögregluskýrslunum. Það fékk ég að vita síðar, því stjórnmálalögreglan tók mig fastan. Fjöldi fólks reyndi að leysa mig út og að lokum var mér sleppt. En stjórn- málalögreglan vildi ná sér niðri á mér og kom því til leiðar að ég var kvaddur í herinn. Nokkru síðar var ég enn settur í fang- elsi. í þetta sinn af Þjóðverjum, eftir að fasisminn hafði beðið skipbrot. Þegar ég kom aftur til Ítalíu var margt breytt, einkum ítal- irnir. Lengi reyndi ég að átta mig á því, hvort það var til hins betra eða verra. Að lokum uppgötvaði ég, að þegar öll kurl komu til grafar, höfðu þeir ekkert breyzt og það tók ég svo nærri mér. að ég lokaði mig inni. Skömmu seinna var nýtt tímarit, Candida, stofnað í Milano, og þar sem ég var starfsmaður þess, varð ég brátt rammflæktur í stjórn- mál, enda þótt ég væri óflokksbundinn, og það er ég enn þann dag í dag. Engu að síður mat tímaritið mikils það, sem ég skrifaði. — ef til vill vegna þess að ég var aðalritstjórinn. Smásögurnar, sem komu í Candida og voru gefnar út með samheitinu lleimur í hnotskum, urðu mjög vinsælar á Ítalíu. Margir skrifuðu langar greinar um bókina, aðrir sendu mér bréf um einhverja söguna. Þessvegna er ég nú dálítið ruglaður í ríminu og myndi verða í mestu vandræðum ef ég væri krafinn um skoðun mína á Don Camillo-sögunum.

x

Leikskrár Þjóðleikhússins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Leikskrár Þjóðleikhússins
https://timarit.is/publication/2016

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.