Leikskrár Þjóðleikhússins - 01.02.1957, Síða 13

Leikskrár Þjóðleikhússins - 01.02.1957, Síða 13
YValter Firner Walter Firner er Austurríkismaður, ættaður frá Vínarborg, þar sem hann ólst upp meðal lcikara og leikhúsfólks. Hugur hans beindist því snemma að leiklistinni. Hann varð leikari á unga aldri og lék í ýmsum leikhúsum. m. a. í Köningsberg, Bonn og Hamborg, og síðast í Ríkisleikhúsinu í Berlín, en þar varð hann brátt leikstjóri og setti á svið bæði gömul verk og ný. Árið 1933 stofnaði Walter Firner eigin leikflokk í Austur- ríki og varð fyrstur til að kynna í Vín nýjar leiklistarstefnur, sem mikið bar á í Evrópu um það leyti. Leikflokkurinn sýndi verk eftir marga fremstu leikritahöfunda þeirra tíma, t. d. O’Neill, Giraudoux, Hauptmann o. fl. Mikið orð fór af þessum leiksýningum, sem þóttu menningarviðburðir. Eftir heimsstyrjöldina varð Firner aðalleikstjóri við Alþýð11 leikhúsið í Vín, og gat sér frægðar fyrir sviðsetningu sína á ýmsum þekktum sjónleikum. Nú er hann fastráðinn leikstjóri við hið þekkta Vínarleikhús, Theater in der Josefstadt, þai' sem margir sjónleikir hans eru sýndir í fyrsta sinn, og þá venjulega undir stjórn hans. Einnig hefur hann stjórnað nokkrum þeirra í stærstu leikhúsum Þýzkalands og Sviss, eink- um Johnny Belinda, Johanna von Lothringen og Don Camillo og Peppone. Walter Fii'ner hefur skrifað 26 leikrit. Auk ofannefndra eru þessi helzt: Hohes Gericht (1936), Die Thompson Brothers. sem fjallar um sirkuslíf, Schule der Liebe, Bis wir uns wieder- sehen og Das Kuckucksei. Hið síðastnefnda er mjög vinsælt gamanleikrit, sem hefur verið sýnt víða. Á síðari árum hefur Walter Firner gefið út margar bækur tim leiklist og er álitinn einn af fi'emstu leikhúsmönnum í heimalandi sínu. Hann varð prófessor í leiklist við Listahá- skólann í Vín árið 1949. Gamanleikurinn Don Camillo og Peppone var saminn árið [ 11 ] i.

x

Leikskrár Þjóðleikhússins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Leikskrár Þjóðleikhússins
https://timarit.is/publication/2016

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.