Leikskrár Þjóðleikhússins - 26.12.1966, Page 21

Leikskrár Þjóðleikhússins - 26.12.1966, Page 21
Operan Marta eftir Flotow Árið 1844 heyrði Flotow í fyrsta skipti flutt verk eftir sig í hinni frægu óperu Parísarborgar, er sýndur var ballett með eft- irfarandi titli: LADY HARRIET ou La Servante de Greenwich Flotow hafði skrifað tónlistina við hinn fyrsta af þremur þáttum ballettsins — vegna tímahraks hafði samningu hinna tveggja þáttanna verið skipt milli tveggja annarra tónlistar- manna í París. Og hvers vegna ekki? Ballett var þá, engu síður en nú, fremur glaðningur fyrir augað en eyrað. Sjónarvotti, sem viðstaddur var þessa sýningu — sem raun- ar hlaut ágætar viðtökur, farast svo orð: „Ungu stúlkurnar stilla sér upp í langa röð og bíða þess, að bændurnir bjóði í þær: á hinum árlega markaði er það semsé siður að þjónustu- stúlkur, sem breyta vilja til, verði sér úti um nýja húsbóndann með þessum hætti.“ í óperunni um lafði Harriet, sem Flotow samdi tveimur árum síðar, er atburðarás ballettsins fylgt af allmikilli nákvæmni: þar er frásögn af hefðardömu við hirð Önnu drottningar, sem út af einskærum leiðindum fer á markaðinn í Richmond, og undir fölsku yfirskyni lætur hún selja sig sem þjónustustúlku til eins árs. Flækjur þær og vafningar sem sigla í kjölfarið vegna ástar Lyonels koma einnig nokkurn veginn heim við efni ball- ettsins. Hvaða erindi á þá óperan Marta á svið nútíma leikhúss? Ópera með gamaldags atburðarás um stúlkur, sem láta selja sig á markaði; um siði og háttu, sem fyrir löngu heyra mann- kynssögunni til? Að sjálfsögðu er umgerð atburðanna í þessari óperu úrelt orðin, og mun verða það, jafnvel þó að sviðssetningin færi tíma- bilið fram um meira en heila öld, eða fram til miðrar aldarinn- ar sem leið, þegar hugsunarháttur og látæði hæfa betur róman- tískri tónlist Flotows. En umbreyting óperunnar í nýtízkulegt (Framhald á bls. 27). 19

x

Leikskrár Þjóðleikhússins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Leikskrár Þjóðleikhússins
https://timarit.is/publication/2016

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.