Alþýðublaðið - 03.02.1920, Side 3

Alþýðublaðið - 03.02.1920, Side 3
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 um og er ekki álitlegt ef ekki •"aknar fram úr þessu kolaleysi þar innan skamms. Sjómannafélag Rvíknr. Eftir að lögum Hásetafélagsins hefir verið breytt þannig að nú geta fleiri sjómenn verið í því en bein- línis hásetar, hefir félagið skift um nafn og nefnist hér eftir Sjó- mannafélag Reykjavíkur. Hið fyrra nafn félagsins bar það frá stofn- ðegi þess 23. okt. 1915. Alþýðu- blaðið óskar félaginu til hamingju með nýja nafnið. Grlíman um Ármannsskjöldinn fór fram eins og til stóð á sunnu- daginn er var. 14 menn tóku þátt í henni, en sá 15 meiddist lítils- háttar eftir fáar glímur og hætti. Sigurjón Pétursson bar sigur af hólmi. lagði hann alla, og hlaut þar með, til eignar, þennan skjöld Árnianns í þriðja og síðasta sinn Húsið kvað hafa verið troðfult og er svo að sjá sem þeir, er glím- um þessum ráða, hugsi ekki mik- ^ð um það, að almenningur geti notið skemtunar af því að horfa á íslenzku glímuna, því aðgangur kostaði 5 kr. Annars ættu glímu- 'Uót og aðrar íþróttasýninnar að Vera styrktar svo vel af rfkinu eða bænum, að almenningur ætti kost 3 að sækja þær. Það yrði öllu ’þfóttalffi til ómetanlegs gagns og þá um leið öllu þjóðfélaginu. En ^vað skal segja, þegar ekkert not- ^æít hús, vegna smæðar, er fá- anlegt í höfuðstaðnum. i. jjíróttnr<c, blað íþróttamanna, er nýútkomið og hefir að flytja ^uisan skemtilegan fróðleik um ^þfóttir fyr og sfðar. Þeir sem unna fþróttum ættu að styðja þetta blað og kaupa það. íróf standa nú yfir í Háskól- anUm, bæði fyrrihlutapróf og em- ^®ttispróf í læknisfræði, og efna- ,r®ðispróf. Próf í guðfræði og um ^iðjan mánuðinn próf i forspjalia- vtsinduro. Áhuginn eykst. Á fundl sjó- ^nnafélags Reykjavíkur, sem a*dinn var síðastliðinn sunnudag, ^ttust félaginu 19 nýjir íélags- uienn. itótorhátinn »Sæborg« frá ranesi vantar síðan á laugar- 3slenzk listasýning i Xaupmannaiíöjn. Verður opnuð 10. marz. Félagiö „Dansk-Islandsk Sam- fund“ heflr ákveðið að gangast fyrir íslenzkri listasýningu í næsta mánuði. Verður hún haldin hjá Kleis, og opnuð 10. marz. Ásgrímur Jónsson, Þórarinn Þor- láksson og Ríkarður Jónsson fengu nýlega símskeyti, þar sem þeir voru beðnir að taka þátt í sýn- ingunni. Höfðu þeir allir svarað símleiðis, að þeir mundu taka þátt í henni. Tiðtal við Ríkarð. „Eg er ekki búinn að ráða við mig ennþá, hvað eg sendi. Fyrir- varinn er óþægilega stuttur, og því ekki tök á að búa neitt til sérstaklega fyrir þessa sýningu. Nokkur verk eftir mig eru í Khöfn, og mun eg setja þau á sýninguna. Meðal þeirra er mynd af Þorvaldi Thoroddsen, sem hvergi heflr verið sýnd áður, og mynd af Borgbjærg, jafnaðarmannaforingja. Héðan að heiman býst eg við að senda brjóst- myndina af Stepháni G. Stepháns- syni, og ef til vill eitthvað af lág- myndum og einhverjar teikningar“. Yiðtal við Ásgrím. „Eg fékk símskeyti um að taka þátt í þessari sýningu fyrir eitt- hvað viku“, segir Ásgrímur, „og mun taka þátt í henni með nokkr- um myndum, bó tíminn sé afar- naumur og eg illa undir sýningu búinn. Ef vel hefði átt að vera, hefði maður átt að fá að vita um þessa sýningu með árs fyrirvara. Eg hefi verið beðinn um að senda 20 myndir, en get ekki sent svo margar. Líklegast sendi eg einar tólf héðan, en fjórar myndir á eg í Khöfn, svo eg hefi alls 16 mynd- ir á sýningunni. Þessar 12 myndir, sem eg sendi, eru aðallega lands- lagsmyndir úr Borgarfirði og Fljóts- hlíð — alt myndir frá síðustu árum. Af íslendingum í Khöfn, sem sýna listaverk á þessari sýningu, má nefna, af málurum Jón Stef- ánsson (af Sauðárkrók), Jóhannes Kjarval, Guðm. Thorsteinsson og Dag5brúr\. Stjórnarfundur verður í Alþýðu- húsinu miðvikudaginn 4. þ. m. kl. 8 síðd. Fræðslunefnd og styrk- veitinganefnd eru beðnar að koma á fundinn. Formaðurinn. Kristínu Jónsdóttur frá Arnarnesi. Af myndhöggvurum Nínu Sæ- mundsson og Einar Jónsson". „Haldið þér að þetta geti orðið nógu góð sýning, og íslendingum til sóma?" „Það get eg ekkert um sagt", svarar Ásgrímur. „Eg held að undirbúningurinn sé alt of lítill, eins og eg sagði áðan, svo eg er hálfsmeikur um að sýningin geti ekki orðið eins góð eins og fyrsta íslenzka listasýningin í Kaupm,- hefði átt að vera“. Yiðtal við Pórarin. „Eg er mjög illa undir það bú- inn, að taka þátt í þessari sýn- ingu“, segir Þórarinn. „Eg mun því aðeins senda á hana þrjár til fjórar myndir. Meðal þeirra verða stóra myndin af Heklu, og litla myndin af mér sjálfum". „Haldið þér að sýningin geti orðið eins myndarleg og æskilegt væri“. „Um það skal eg ekkert segja. Það fer nokkuð eftir því, hvort sýningin verður gefin út fyrir að vera fullkomin sýning af íslenzkri list eða ekki — en fullkomin sýn- ing getur hún auðvitað ekki orðið, meðal annars af því, hvað mynd- irnar hljóta að verða fáar. Eg er nú samt að vona, að Ásgrímur sendi sem flestar myndir. Ef það hefði átt að vera full- komin íslenzk listasýning, hefðí þurft að vera árs fyrirvari. Þá álít eg líka, að þeir ungu hefðu átt að fá að vera með, jafnvel þó það hefði þá verið sett dómnefnd til þess að vinsa úr það sem 6- hæft hefði þótt“. Eigandi Duus-verzlana, ólafur A. Ólafsson stórkaup. maður, lézt f Khöfn 29. janúar, eftir langa vanheilsu.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.