Kristilegt skólablað - 01.09.1975, Side 9

Kristilegt skólablað - 01.09.1975, Side 9
Er sama, á hvað við trúum? Liggja allar leiðir heim tii Guðs að lokum? Ég hef í þessum fáu orðum mínum leitazt við að svara þessum spurn- ingum, — og svar mitt er afdráttarlaust neitandi. Það er ekki sama, á hvað við trúum. Ekki liggja allar leiðir heim til Guðs. Enginn getur frelsað okkur og gefið okkur eilift samfélag við Guð nema aðeins le-sús Knstur einn. Hann einn getur gefið okkur það, sem hjarta okkar þráir innst inni, — frið við Guð. Hann einn er frelsari. Fagnaðarerindið segir aldrei við þig: Þú skalt. Það segir lögmálið. Það segir mannleg trúrækni. Það segir mannlegt eðli okkar. Fagnaðarerindið segir okkur frá því, sem Guð hefur gjört í okkar stað. Það flytur okkur boðskapinn um þá náð, sem Guð vill gefa okkur. Fagnaðarerindið leggur áherzlu á Guð, en ekki sjálfan þig. Við skulum varast alla villukennendur, sem koma til okkar með kristilegu yfirvarpi, en reyna að villa um fyrir okkur, — reyna að benda á eitthvað annað en Jesúm Krist. Þú getur alltaf þekkt boðskap þeirra á því, hvort þeir boða Jesúm Krist sem hinn eina frelsara okkar manna, sem hefur gjört allt fyrir okkur. Villukennendur reyna alltaf að hnýta einhverjum kröfum aftan í fagnað- arerindið, — bæta einhverju við eða fella annað niður, setja einhvern upp við hlið Krists. Jesú Kristur einn frelsar. Hjálpræðisverk hans, sem hann vann á krossinum, er fullkomnað. Þar þarf engu við að bæta. Hann er hin eina færa lausnar- leið okkar manna til Guðs. Engin leið önnur er fær. „Trú þú á Drottin Jesúm, og þú munt hólpinn verða“. Síra Jónas Gíslason, lektor. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta, Sálm, 23.1. Ég hef reynt, hvað það er að lifa og trúa á Guð, en ég hef líka lifað með Hann svona hálfgert í bak- höndi'na og þá mundi ég aðeips eftir Honum, þegar eitthvað bját- aði á eða eitthvað sérstakt var um að vera. Nú eru nokkur ár síðan. Ég sé alls ekki eftir því, að hafa tekið við Guði persónulega, því Hann hefur gefið tílganginn með lífinu, gleði og frið. Ég hef hlotið og ég veit núna, að ég á von úm eilíft líf með Honum. Sá, sem trúir á soninn hefir eilíft líf, en sá sem óhlýðnast syninum skal ekki sjá lífið, heldur varir reiði Guðs yfir honum, en Hann var særður vegna vorra synda og kraminn vegna vorra misgjörða; hegningin, sem vér höfðum til unnið, kom niður á Honum, og fyrir Hans benjar urðum vér heilbrigðir, Jes. 53:5. Við eigum þetta alls ekki skilið, mín við sem erum syndarar og ættum í raun, að vera útskúfuð af Guði, en Hann hefur gefið okkur lífs- von og þessi lífsvon er Jesús Kristur. Hefur þú tekið við Jesú Kristi sem þínum persónulega frelsara? Ef ekki, hvað ætlarðu þá að gera með Hann? Þér finnst þetta ef til vill bara barnalegt eða ekki skipta neinu máli fyrir þig, en reyndu Guð áður en þú afneit- ar Honum, biddu Hann, án þess að efast, um að sýna þér, að Hann er Iifandi staðreynd og fús að taka við þér. Ég veit að Hann svarar bæn þinni. Ég hef augu mín til fjallanna: Hvaðan kemur mér hjálp? Hjálp mín kemur frá Drottni skapara himins og jarðar. (Sálm, 121. 1-2). Guð blessi þig. Laufey Valsteinsdóttir. 9

x

Kristilegt skólablað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kristilegt skólablað
https://timarit.is/publication/2034

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.