Kristilegt skólablað - 01.09.1975, Qupperneq 12
Á þessari stundu segist hann hafa gengið yfir frá
dauðanum til lífsins. Dagarnir sem í hönd fóru
sönnuðu að þetta var ekki runnið undan rótum
tilfinninga eða af áhrifum áfengis því að frá
honum var tekin öll löngun í áfengi og tóbak. Nú
útvegaði hann sér íslenska Biblíu. Á þrettán daga
ferð sinni til Ameríku las hann Biblíuna tvisvar
sinnum spjaldanna á milli. Þegar til Ameríku
kom keypti hann sér Biblíu á ensku, bar saman
texta beggja bókanna og lærði þannig að lesa
ensku jafnframt því sem hann fræddist í orði
Guðs.
í Ameríku biðu hans fyrst í stað erfiðir tímar og
hörð lífsbarátta, sem hann í trú og trausti á Guð
sinn háði með þrautseigju og þolinmæði, uns
hann hafði, með Guðs hjálp, yfirstigið erfiðleik-
anna. Hann kvæntist ágætri kristinni konu og
eignaðist með henni þrjú mannvænleg börn.
Hann varð brátt auðugur maður. Þess auðs
aflaði hann sér með frábærri iðni, útsjónarsemi og
dugnaði. Auðurinn var honum þó ekki fjötur um
fót því að hann var jafnframt ríkur í Drottni og
notaði hinn veraldlega auð eins og hann gat til
þess að vinna að útbreiðslu Guðs ríkis. Hann tók
þátt í safnaðarstarfi og gerðist síðar Gídeonfélagi.
Hann segir sjálfur svo frá: „Eftir að hafa starfað
að kirkju og kristindómsmálum um margra ára
skeið gjörðist ég Gídeonfélagi. Gídeonfélagið er
það dásamlegasta kristilega starf, sem ég hef tekið
þátt í. Ég hugsaði sem svo, hvers vegna ekki að
stofna Gídeonfélag á ættlandi mínu, íslandi.
Hvað var þá eðlilegra en að Gídeonfélagi af
íslensku bergi brotinn búsettur í Bandaríkjunum
tæki sér ferð á hendur til Islands til þess að
athuga, hvað hægt væri að gera. Ég gerði einlæga
tilraun til þess að hafa uppi á slíkum manni, með
ótvíræða hæfileika, manni sem Guð gæti notað til
að stofna Gídeofélag þar. Mér til mikillar hryggð-
ar fann ég engan slíkan. Eftir að hafa beðið mikið
og lesið Guðs orð komst ég að þeirri niðurstöðu að
Guði þóknast stundum að nota ósköp venjulega
menn til þess að framkvæma vilja sinn. Ég las í
l.Kor. 1:26—29 og að þeim lestri loknum hugsaði
ég með mér að ef til vill gæti Guð notað mig“. Og
svo lagði hann af stað til íslands í ágúst 1945 í
þeim tilgangi að reyna að stofna Gídeon-deild á
íslandi.
„Þegar þangað kom“, segir hann ennfremur,
„varð ég þess fljótt áskynja að ég hafði gleymt
móðurmálinu. Eg hafði varla heyrt það né talað í
meira en fjörutíu ár. Á íslandi hitti ég fyrir kæran
bróður, Ólaf Ólafsson, sem tók mér tveim hönd-
um og málaleitan minni sérstaklega vel“. Eélagið
var síðan stofnað með 17 meðlimum 30. ágúst
1945. Nú eru félögin þrjú, þ.e. í Reykjavík, með
72 meðlimi, á Akureyri, með 17 meðlimi og á
Akranesi, með 13 meðlimi, alls 102.
Upphaflega var Gídeonfélagið eingöngu samtök
kristinna sölumanna. Síðan opnaðist það einnig
öðrum kaupsýslumönnum, og enn síðar öðrum
sérmenntuðum mönnum.
Nú kann einhver að spyrja hvort Gídeonfélagið
fari manngreinarálit þar sem menn verða að vera
í vissri stöðu eða stétt til þess að öðlast inngöngu-
rétt. Fjarri fer því. Gídeonfélagið metur sérhvern
mann eftir manngildi en ekki stöðu. Gídeonfélag-
ar vita að í augum Guðs er sérhver maður
dýrmætur í hvaða stétt og stöðu sem hann er. Þess
vegna er það markmið félagsins að ávinna sem
flesta fyrir Guð. Hinsvegar má segja að Gídeon-
félagar leitist við að vera raunsæir og hagsýnir í
starfi. Þeir leggja einkum á það áherslu að virkja
þá til starfa sem ætla mætti að stöðu sinnar vegna
í þjóðfélaginu væru öðrum fremur líklegir til þess
að geta lagt starfinu lið, menn sem hafa ráð á
tíma sínum og fjárhagslega getu til að sinna
starfinu eins og þörf krefur hverju sinni. Þannig
hagnýtir Gídeonfélagið sér krafta, sem ef til vill
færu forgörðum eða beindust að einhverju öðru
verkefni, sem ekki væri jafn mikilvægt og það að
ávinna menn fyrir Krist Jesúm. En eins og lögin
gera ráð fyrir er höfuðáherslan lögð á það, enda er
það skilyrði sett fyrir þátttöku í starfi félagsins, að
meðlimir séu játandi kristnir menn sem vilja
vinna að þessu markmiði Gídeonfélagsins.
Gídeonfélagið leggur ekki fyrst og fremst
áherslu á fjölda meðlima, þótt fagnað sé hverjum
nýjum félaga, heldur eins og Gídeon forðum gerði
að ráði Guðs, að nota hina fáu til hins mikilvæga
starfs.
Eins og að framan greinir er markmið félagsins
hið sama og hinnar sönnu kirkju Krists frá
upphafi, að ávinna karla og konur fyrir Jesúm
Krist. Enda hefur Gídeonfélagið stundum verið
nefnt hinn framlengdi armur kirkjunnar. Gídeon-
félagar ná með starfi sínu oft til þeirra sem aldrei
koma til kirkju eða þangað sem Guðs orð er ekki
um hönd haft.
Gídeonfélagið á íslandi hefur frá upphafi starfs
síns dreift yfir eitt hundrað þúsund eintökum af
Biblíum og Nýja-testamentum, auk fjórtán þús-
unda eintaka af Jóhannesarguðspjalli, samsíða á
íslensku og ensku. Biblíum hefur verið komið fyrir
í hótelum, farþegaskipum, fangelsum og flugvél-
12