Kristilegt skólablað - 01.09.1975, Blaðsíða 13
um. Nýja-testamentum hefur verið dreift í flest ef
ekki öll sjúkrahús landsins. Hjúkrunarfólk sem
útskrifast frá Hjúkrunarskóla Islands fær hvítt
Gídeon Nýja-testamenti um leið og þeim eru
afhent prófskírteini. Sjúkraliðar fá Nýja-
testamenti í gráum lit og ljósmæður grænum.
Stærsta verkefni Gídeonfélaga á Islandi er dreifing
Nýja-testamenta á meðal skólabarna. Frá haust-
inu 1954 hafa um 90 þús. börn fengið Gídeon
Nýja-testamenti í bláum lit. Ætla má því að allir
íslendingar á aldrinum 11—32 ára hafi fengið
Nýja-testamenti að gjöf. Alls hefur Gídeons Inter-
national dreift 142.509.492 eintökum af Biblíum
og Nýja-testamentum, þar af 14.297.699 Biblíum
samkvæmt skýrslu 30. nóv. 1974.
Þessar stóru tölur segja sína sögu og að baki
þcim liggur ógnar mikið og víðtækt starf Gídeon-
félaga í hinum ýmsu löndum. En sumir kunna ef
til vill að spyrja hvort þetta starf hafi borið
einhvern árangur. Við sem vinnum að þessu starfi
erum sannfærðir um að svo sé. Guð hefur sjálfur
sagt svo að hvert það orð sem einstaklingurinn
heyrir eða les frá honum snúi ekki til baka fyrr en
það hafi framkvæmt það sem Guð hafi falið því að
framkvæma.
Við höfum að vísu ekki marga vitnisburði um
bein áhrif Biblíu og Nýja-testamentis dreifingar-
innar hér á landi. Þó höfum við ástæðu til að ætla
að áhrifanna gæti óbeint í lífi sumra þeirra, sem
fengið hafa Gídeon Nýja-testamenti í hendur. Það
yrði þakksamlega þegin uppörvun fyrir Gídeon-
félaga ef einhver af lesendum þessa blaðs gæti
greint munnlega eða skriflega frá einhverjum sem
beint eða óbeint, fyrir lestur Gídeons Nýja-
testamentis, hefur áunnist fyrir Krist Jesúm.
Þorkell SIGURBJÖRNSSON
oitt er valiá
Það sem einkum virðist ein-
kenna samtíð okkar, sem búum í
hinum vestræna heimi, er keppni
eftir miklum og síauknum lífs-
gæðum. Því er ekki úr vegi að við
spyrjum okkur sjálf hvort fólk
virðist vera hamingjusamara
samfara þessum miklu lífskjörum.
Því miður held ég að við kom-
umst að neikvæðri niðurstöðu.
Fólk virðist hafa gleymt hinu
eina nauðsynlega, eða eins og
Jesú segir: „Því hvað stoðar það
manninn, þótt hann eignist allan
heiminn, en fyrirgjöri sálu sinni“.
(Matt. 16:26).
Kristindómurinn er í hugum
margra einungis góðar og hollar
lífsreglur. Þetta er algjör
misskilningur. Það er mikilvægt
að við gerum okkur það ljóst að
kristindómurinn er ekki einhver
kenning samin af mönnum, held-
ur lifandi staðreynd þar sem Jes-
ús lifir og ríkir.
„I því birtist kærleikur Guðs
meðal vor, að Guð hefir sent sinn
eingetinn son í heiminn til þess
að vér skyldum lifa fyrir hann“.
Þetta er boðskapurinn, sem
kemur til okkar mannanna, án
tillits til aldurs, stéttar eða stöðu.
Þetta er sá boðskapur, sem mér
hefur hlotnast náð til að taka á
móti. Ég veit að hann er hið eina
sem getur leitt okkur til lífsins,
Jesú Krists. Þessi boðskapur kem-
ur nú til þín lesandi góður, sem
boðskapur um frelsi frá synd og
björgun frá glötun. Þitt er valið!
Jesús Kristur hefur gert allt, sem
gera þarf, þitt er aðeins að taka á
móti. Guð hefur gefið þér frjálst
val um það hvort þú viljir velja
hann eða hafna honum, hlutleysi
er ekki til, því að þar með hef-
urðu hafnað honum. Sbr. Op. 3.
15—16:, „Ég þekki verkin þín að
þú ert hvorki kaldur né heitur,
betur væri að þú værir kaldur
eða heitur því er það af því að þú
ert hálfvolgur, og ert hvorki heit-
ur né kaldur, mun ég skyrpa þér
út af munni mínum“.
Þetta er alvarlegur boðskapur
og í þessu er alvara fagnaðar-
erindisins einmitt fólgin, að þú
getur hafnað gjöf Guðs og þar
með lífinu.
Ég get ekki í mínum eigin
mætti sannfært þig um elsku og
náð Jesú Krists. En það er mín
einlæg bæn og ósk, að þú mættir
lesa orð hans og umfram allt gefa
honum líf þitt í einlægri bæn.
Þröstur Eiríksson.