Kristilegt skólablað - 01.09.1975, Side 15
fyrsta hvítasunnudag) Ef við
þannig treystum að boðskapur
Jesú sé sannur, þá komumst við
ekki undan orðum hans er hann
segir: „Enginn kemur til föðurins
nema fyrir mig.“
Sökum þess, að kirkjan telur
sig bundna af orðum Krists, get-
ur hún ekki vikið sér undan, að
boða þetta: Jesús er eini vegurinn
til Guðs.
Fara þá þeir, sem ekki vilja
trúa á hann til helvítis? Þannig
er venjulega framhaldið.
— Samkvæmt orðum Jesú,
v rða .. í.n að trúa og treysta á
hann eir- *?., vilji þeir gera sér von
um eilítt samfélag með Guði.
Hinir hljóta því að búa við
sambandsleysi við Guð um eilífð.
Þar með er ekki sagt, að þeir séu
grillaðir í eilífum eldi, þar sem
svartir púkar með horn, hala og
þrífork velgja þeim undir uggum.
Sú hugmynd er byggð á mistúlk-
un miðaldarkirkjunnar á orðum
Jesú. Hann lýsir sambandsleys-
inu við Guð við dvöl í Gehenna,
sem var nafnið á öskuhaugum
þeirra Jerúsalembúa. (Ég býst
ekki við, að nokkurt okkar vildi
búa á öskuhaugum reykvíkinga
til dæmis). Fyrir okkur væri bezt
að túika ,,helvíti“ sem tilveru
hinna glötuðu tækifæra, þar sem
við hefðum misst af síðasta
strætisvagninum. Meira en þctta
vitum við ekki um helvíti.
Hvað þá með heiðingjana, sem
aldrei hafa heyrt boðskapinn um
Krist? f hreinskilni sagt, þá er
ekki hægt að svara þessari spurn-
ingu.
Biblían segir okkur lítið sem ekk-
ert um þetta atriði. Þó vitum við
tvennt:
I fyrsta lagi: Guð er miskunn-
samur — honum er annt um alla
og hann viíl ekki að neinn glatist.
í öðru lagi: Það er um það
talað í bréfi Páls til rómverja
(Róm.F 14—16), að þeir verði á
einhvern hátt dæmdir eftir því
lögmáli (hvað sé rétt og rangt),
sem ritað sé í hjörtu þeirra og
hvernig þeir hafa brugðist við
því. Við getum dregið saman:
1. Jesús er eina leiðin til
Guðs (því í honum hefur Guð
opinberast mönnum').
2. Þeir er hafna honum búa
við guðlausa tilveru (hinna glöt-
uðu tækifæra).
3. Heiðingjarnir verða
dæmdir eftir lögmáli hjartna
þeirra af miskunnsömum Guði.
LEIÐIR EKKI GOTT LÍFERNI
TIL EILÍFS LÍFS?
Þeir eru margir, sem halda, að
kristin trú sé það, að reyna að
vera sem bestur. Fifandi trúnað-
artraust á Jesú Kristi skiptir þá
litlu máli.
Kristin trú hafnar slíku
afdráttarlaust. Það er byggt m.a.
á orðum Jesú úr Fjallræðunni
(Matt. 5.20) — „Því að ég segi
yður, að ef réttlæti yðar tekur
ekki langt fram réttlæti fræði-
mannanna og Faríseanna, komist
þér alls ekki inn í himnaríki.“
Farísear og fræðimenn voru
bestu menn sinnar samtíðar
(andstætt því, sem við höldum
oft), og Jesús gerði kröfu til, að
almúginn stæði þeim langtum
framar. Reyndar voru þetta kröf-
ur, sem enginn gat uppfyllt.
Ég býst ekki við, að nokkurt
okkar gæti uppfyllt þessar kröfur
um fullkomið Iíf. Ef þú ert ósam-
mála skaltu rannsaka eigin hug.
Kannaðu hVort þú hafir ekki
einhvern tíma hugsað svo Ijóta
hugsun, að þú myndir ekki segja
nokkrum manni frá henni.
Ég veit að þú hefur gert það og
þar með hefurðu brotið gegn
þeim kröfum, sem Jesú gerir til
þín.
Hvernig eignumst við þá eilíft
lít? Fyrir trú og traust á Jesú
Krist ,því að fyrir trú á hann
tileinkum við okkur fullkomið
réttlæti hans og erum lýst rétt-
lætt. Aðeins þannig verðum við
fullkomin, eins og okkar himn-
eski faðir er fullkominn.
Við getum sagt í stuttu máli:
1. Eigið líferni ávinnur okkur
ekki eilíft líf, því að það nær svo
skammt.
2. Tileinkun okkar á full-
komnu lífi Jesú Krists fyrir
trúna réttlætir okkur.
NIÐURLAG
Gaman hefði verið, að taka
fyrir fleirri spurningar, en því
miður skortir rúm til þess í blað-
inu. Ég vona þá, að þessi fáu orð
geti orðið einhverjum til hjálpar,
þegar spurningar þessar koma
upp í huga hans. — Að orð þessi
megi verða upphaf eða styrking á
vináttu við stórkostlegustu
persónu, sem mannkynssagan
kann frá að segja — JESÚM
KRIST.
Halldór Reynisson
15