Kristilegt skólablað - 01.09.1975, Side 16
KSS?
Eðlilegt er, að menn spyrji,
þegar þeir sjá skammstöfun, hvað
hún tákni. Skammstöfunin KSS
táknar Kristileg skólasamtök.
Nafnið gefur þegar nokkrar upp-
lýsingar um félagið. Það er kristi-
legt og er samtök skólafólks.
Samtökin voru stofnuð 22.
janúar 1946 af nokkrum nem-
endum framhaldsskóla í Reykja-
vík. Tilgangur félagsins er að
koma fagnaðarboðskapnum um
Jesúm Krist á framfæri við nem-
endur í framhaldsskólum, enda
er kjörorð félagsins, „Æskan fyrir
Krist.“. Ef til vill er rétt að taka
það fram, að samtökin eru ekki
sértrúarflokkur, heldur starfa þau
á sama grundvelli og evangelísk-
lúthersk kirkja, enda eru flestir
meðlimir samtakanna í þjóðkirkj-
unni.
Já hverjir standa fyrir þessu
starfi? Nú, eins og verið hefur frá
upphafi, kjósa meðlimir samtak-
anna stjórn úr sínum hópi. Stjórn
félagsins er því að öllu leyti í
höndum meðlimanna sjálfra. Til
trausts og halds hafa samtökin
fengið þrjú kristileg félög til þess
að skipa einn mann sameiginlega
í stjórn. Félög þessi eru KSF
(Kristilegt stúdentafélag),
KFUK og KFUM.
Afkomu sína byggja samtökin
á fórnfýsi meðlima sinna og vel-
unnara. Félagsgjöld eru engin.
Stofnendur voru rúmlega 30, en
meðlimir eru nú um það bil 300,
og allir á framhaldsskólaaldri eru
velkomnir.
Hvernig starfa Kristileg skóla-
samtök að markmiði sínu? Félag-
ið heldur reglulega fundi á laug-
ardögum yfir vetrarmánuðina.
Þeir eru haldnir að Amtmanns-
stíg 2B eða öðrum húsum
KFUM og K. Fundarefni er
margbreytilegt, má þar nefna t.d.