Kristilegt skólablað - 01.09.1975, Síða 18

Kristilegt skólablað - 01.09.1975, Síða 18
Dulhyggja, galdratrú og alls konar kukl breiðist nú mjög út um hinn vestræna heim. Hvers konar „einkennilegir atburðir“ vekja athygli, og menn leggja stund á fræði, sem talin voru tilheyra miðaldasögunni. Sagt er, að í Frakklandi séu fleiri seiðmenn, sem starfa opinberlega, en læknar. í héraðinu Norm- andí eru yfir þrjú hundruð kapellur, helgaðar dultrúarathöfnum. Alög og galdratrú eru við lýði í Þýskalandi. Tíu þúsund seiðkarlar og seiðkerling- ar á Italíu mótmæltu því fyrir nokkru, að stjórnin neitaði að viðurkenna starfsgrein þeirra og vildi ekki veita þeim sem stétt almannatryggingar og ellilífeyri. Lög urn galdrakukl voru afnumin í Englandi árið 1951. Nú eru galdrar algengir þar. Börn eru helguð Satan á Vesturlöndum. Fyrsta Satanskirkjan var vígð í San Fransisco árið 1955. Nú er fullyrt, að safnaðarmenn séu tíu þúsund talsins. Satansdýrkun á sér stað jafnvel á Norður- löndum, t.d. í Noregi. Mannát hefur átt sér stað við athafnir Satansdýrkenda. Margir sökkva sér niður í austræna heimspeki og iðka svonefnda hugleiðslu. — Þannig má lengi telja. Spíritisminn er eins konar dultrúarstefna. Hann virðist eiga töluverðu fylgi að fagna hér á landi. Miðlar ferðast um landið og halda fundi, og spíritistafélög eru stofnuð. Spíritismi er það að reyna að ná sambandi við dáið fólk. Forsendan er sú, að menn lifi áfram og að unnt sé að komast í tengsl við þá. Spíritistar eru sannfærðir um, að það hafi tekizt. Það gerist jafnan fyrir tilstilli miðla. Þeir virðast stundum falla í einhvers konar mók og telja sig tala við dauða menn og flytja skilaboð til þeirra eða frá þeim eða dauðir tali með munni þeirra og radd- böndum. Stundum segjast þeir geta læknað sjúk- dóma og njóta þá jafnvel hjálpar framliðinna lækna. Sálfræðingar eru ekki á eitt sáttir um, hvernig eigi að skýra þetta — eða jafnvel, hvort þetta sé til. Ýmsir ætla, að hér sé eingöngu um að ræða sálræna hæfileika. Menn tala um fjarskynjun eða hugsanaflutning, t.d. frá fundarmönnum til mið- ilsins. Nefnd er hlutskyggni, hæfileiki til að skynja liðna sögu hluta — og þá einnig sögu manna, og kunni miðillinn að hafa slíka eiginleika. Margir telja þó, að andar framliðinna komi einnig fram á miðilsfundinum. Enn eru þeir, sem eru sannfærðir um, að illir andar séu á ferðinni til að blekkja menn og leiða þá í villu. Svo er um fyrrverandi miðil að nafni Rose Bevill. Hún segir, að það hafi lokizt upp fyrir sér, að hún hafi verið dregin á tálar af djöflinum. Og hún varar menn ákaft við spíritismanum og kallar hann blómum stráðan helveg. Hún sneri sér til Jesú Krists og varð ný manneskja. Hvað segir Biblian? Biblían er bók Guðs. Hún er orð hans. Hvað segir hún um illa anda, og um spíritismann, að leita sambands við hina dauðu? Hún skýrir frá tilveru djöfulsins og illra anda. Það þarf t.d. ekki að lesa guðspjöllin lengi, unz við rekumst á frásögur af því, þegar Jesú rekur út illa anda af mönnum. Þeir höfðu farið í menn og náð tökum á þeim. Sjá t.d. Lúkas 8. 26—39. Já, áður en Jesús hóf starf sitt opinberlega háði hann harða baráttu við hinn vonda. Hann sigraði hann og notaði orð ritningarinnar í þeirri glímu. Þess vegna er ritn- ingin einnig okkar vopn og viðmiðun. Það er skemmst frá því að segja, að ritningin bannar allt samband við anda. Andasæringar og miðilsfundir voru þekkt fyrirbrigði meðal heið- inna þjóða á tímum Gamla testamentisins. Þegar Guð fræddi Israelsmenn um þessi mál, líkti hann því við ótrúmennsku í hjónabandi að koma ná- lægt andasæringum „Sá, sem leitar til særingar- anda og spásagnaranda til þess að taka fram hjá með þeim, gegn honum vil ég snúa augliti mínu og uppræta hann úr þjóð minni. Helgizt og verið heilagir“. Þetta var meira að segja svo alvarlegt í augum Guðs, að fyrirskipað var í lögmálinu, að 18

x

Kristilegt skólablað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kristilegt skólablað
https://timarit.is/publication/2034

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.