Kristilegt skólablað - 01.09.1975, Qupperneq 20

Kristilegt skólablað - 01.09.1975, Qupperneq 20
um hinn krossfesta og upprisna guðsson og frels- ara. Kona ein, sem hafði spásagnaranda, elti Pál postula og félaga hans í borginni Filippí og hrópaði, að þeir væru þjónar hins hæsta Guðs og boðuðu veg til sáluhjálpar. Páli féll þetta illa, og þar kom, að hann rak andann út af henni. A öðrum stað í sama riti segir frá því, þegar áhrif fagnaðarboðskaparins breiddust út í Efesusborg. Þá komu menn, sem höfðu farið með kukl, með bækur sínar og brenndu þær að öllum ásjáandi, og reiknaðist verð þeirra vera fimmtíu þúsund silfur- peningar. „Svo kröftulega óx og elfdist orð Drott- ins“, segir Biblían. Sjá Post. 16:16—34, 19:18—20. Jesús hvatti menn aldrei til að leita frétta af framliðnum. Hann sagði söguna af ríka mannin- um og Lasarusi. Hlutskipti ríka mannsins í öðru lífi var svo hræðilegt, að hann vildi fá að senda einhvern frá hinum dauðu til að aðvara eftirlif- andi bræður sína, svo að þeir lentu ekki í sama kvalastað. En það var ekki leyft, og ríki maðurinn fékk þetta svar: ,,Ef þeir hlýða ekki Móse og spámönnunum (þ.e. ritningunum), munu þeir ekki heldur láta sannfærast, þótt einhver rísi upp frá dauðum“ (Lúkas 16:19—31). Nokknr ávextir spintismans En það er fleira, sem rennir stoðum undir það, að spíritisminn og tilraunir til að ná sambandi við dauða, séu af hinu illa. Jesú hefur gefið lærisvein- um sínum ráð til að prófa andlegar stefnur og kenningar. Hann segir: „Af ávöxtum þeirra skuluð þér þekkja þá“ (Mattheus 7:15—29). Það verður ekki betur séð en að í spíritismanum sé afneitað grundvallarkenningum ritningarinnar, einkum um Jesúm Krist og hjálpræði hans. Ég átti einu sinni erindi á skrifstofu í Reykjavík. Þar hitti ég mann, sem ég vissi, að væri ákafur andatrúarmaður, jafnvel miðill. Ég spjallaði við hann um stund, eftir að ég hafði lokið erindi mínu. Ég sagði eitthvað á þessa leið: „Þið spíritist- ar segið, að miðlarnir beri okkur „boðskap að handan“. Þegar ég les þennan „boðskap“, sé ég, að í honum er hafnað öllum helztu kenningum kristinnar kirkju, þ.e. að Jesús hafi verið fæddur af Maríu mey, að hann sé sonur Guðs í einstæðri merkingu, að hann hafí dáið friðþægingardauða fyrir mennina, að hann hafi risið upp líkamlega á þriðja degi og hann komi aftur á efsta degi til að halda dóm, eins og ritningin kennir“. Svar skrifstofumannsins var skýrt og afdráttarlaust: „Þú hefur rétt fyrir þér. Þessu er öllu neitað, enda trúi ég engu af þessu“. Þessu má víða finna stað, bæði að spíritisminn sannfærir menn um sannindi kristindómsins (sbr. svarið, sem ríki maðurinn fékk) og að sumir fulltrúar þessarar stefnu afneita þeim beinlínis. Kunnur íslenzkur miðill lýsti því yfir í fjölmiðli fyrir nokkru, að hann tryði því ekki, að Jesú væri Drottinn. Annar framámaður andatrúarstefnunn- ar sagði frá því í blaðþ að hann tryði því ekki, að Jesús Kristur væri eina lausnarvon mannkynsins, enda álítur hann ekki, að Jesús hafi dáið fyrir syndir mannanna eða hafi risið upp frá dauðum líkamlega né, að hann hafi allt vald á himni og jörðu, eins og Biblían kennir þó. Jónas Þorbergsson het maður. Hann ritaði margar bækur um ágæti spíritismans. Hann segir berum orðum í einni bók sinni: „Ég trúi ekki á Jesúm Krist eins og Guð“, heldur er Jesús aðeins einn af háum sendiboðum almættisins. Samt segir Biblían, að Jesús sé sonur Guðs og jafn Guði. Endurlausn Jesú fær harða útreið í ritum spíritista. Jónas Þorbergsson kynnir í einni bók sinni útlending, sem hann segir vera einn skelegg- asta rannsóknarmann og rithöfund spíritsmans, sem uppi hafi verið. Ur riti eftir hann getur hann um „niðurstöður spíritismans“ í sjö meginatrið- um, sem séu viðurkennd af spíritistum „hvarvetna á okkar jörð, elcki sem trúaratriði, heldur sem samhljóða fræðsla til allra spíritista, sem náð hafa öruggu sambandi við næsta tilverusvið“. Þar er eitt meginatriðið, að „sérhverjum einstaklingi beri að vera sinn cigin frelsari, en getur með engum rétti varpað því yfir á annan að líða fyrir eigin syndir og misgerðir“. I stað þessa er boðaður óendanjegur þroski. „Hér er trúarlegur kjarni, sem allir hugsandi og vitibornir karlar og konur (!) geta aðhyllzt og þeim er fullnægjandi“. Sextán frelsarar hafa verið uppi fyrir Krists burð, segir í þessu riti. Jesús er sautjándi frelsarinn. Þetta á auðvitað að styðja þá kenningu, að Jesú sé enginn frelsari. Ekki tekur betra við, þegar spíritistar fara að lýsa því, hvernig einlægir trúmenn, sem hafa verið dyggir lærisveinar Drottins Jesú og boðað orð hans í samræmi við ritninguna, meðan þeim entist orka og aldur, hafi nú turnazt í öðru lífi og taki aftur öll fyrri orð sín og predikun. Þannig segir í andatrúarriti einu, að Helgi Hálfdánarson, einn ágætasti sonur íslenzkrar kristni, hafi nú séð að sér og hann biðji þess, að kver sitt verði brennt, svo og allt, sem um kirkjumál fjallar og nafn hans 20

x

Kristilegt skólablað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kristilegt skólablað
https://timarit.is/publication/2034

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.