Kristilegt skólablað - 01.09.1975, Page 22

Kristilegt skólablað - 01.09.1975, Page 22
SM8B 06 HBÍSS Nú eru um það bil 21 ár síðan Islendingar hófu kristniboðsstarf í Konsó í Eþíópíu. Gísli Arnkels- son og Katrín Guðlaugsdóttir voru þar að störfum í 10 ár. Okkur sem erum í ritnefnd Kristilegs skólablaðs datt því í hug að taka viðtal við tvö börn þeirra sem eru í K.S.S., Valgerði eða Vallý, sem er nú í 4. bekk M.R. og Guðlaug eða Gulla sem er að fara í 4. bekk I.R. Við spyrjum þau um starfið í Konsó. Kristniboðsstöðin í Konsó er nokkuð stór. Þar eru þrjú íbúðarhús fyrir kristniboðana, þrjú hús fyrir innlenda starfsmenn, fimm heimavistarhús, tvö skólahús, ný kirkjubygging þar sem biblíuskól- inn hefur tvær kennslustofur og prestarnir hafa skrifstofur og að lokum sjúkraskýlið. Starfið á kristniboðsstöðinni er þríþætt, sem þó er meira og minna samofið. Það er skólastarfið, sjúkrastarfið og boðunarstarfið. 1) Skólastarfið. I skólanum er 1—6 bekkur, og hafa nemendur verið um og yfir 300 síðastliðin ár. Á heimavistinni hafa búið milli 60—100 nemendur. Mikil áherzla er lögð á kristnifræðslu og hver dagur er byrjaður með guðræknistund. 2) Sjúkrastarfið. Á undanförnum árum hefur fjöldi manns leitað hjálpar á sjúkraskýlinu. Tala sjúklinga á síðasta ári var t.d. yfir 20 þúsund. Á sjúkraskýlinu eru hafðar guðræknistundir á hverj- um degi og starfsmenn, sem eru allir kristnir, nota þau tækifæri sem þeir fá til þess að vitna fyrir hinu hrjáða fólki um Frelsarann, Jesúm Krist, sem kom til jarðar til þess að veita líkn og náð. 3) Boðunarstarfið. Guðsþjónustur eru haldnar á hverjum sunnudegi. Auk þess eru samkomur tvisvar í viku þá mántiði sem skólinn starfar. Biblíuskólinn er starfandi þar sem ungir safnaðar- meðlimir fá tækifæri til þess að fræðast meira í Guðs orði. Einnig eru haldnir lengri og styttri biblíunámskeið. Á hverju sumri eru haldin nokkra vikna námskeið fyrir starfsmenn safnaðarins, öld- ungana og safnaðarþjóna. Láta mun nærri að starfsmenn safnaðarins og á kristniboðstöðinni séu um 100 manns og að tala safnaðarmeðlima sé á 5. þúsund. I hverju felst starf kristniboðans? Vallý: „Starfið felst fyrst og fremst í því að prédika Guðs orð, en auk þess fer mikill tími hans í kennslu og störf sem viðkoma skipulagi alls starfsins.“ Er það ekki annasamt og erfitt? Gulli: , Jú, óhætt er að fullyrða að svo sé“ Finnst ykkur kristniboð réttmætt. Margir telja að verið sé að eyðileggja menninguna? Vallý: „Fyrir kristna menn hlýtur kristniboð að vera í hæsta máta eðlilegt. Jesús hefur falið lærisveinum sínum að gera allar þjóðir að læri- sveinum sínum. Að sjálfsögðu hlýtur menning heiðinna þjóða að breytast á ýmsan hátt. Eftir að heiðingi er orðinn kristinn, heldur hann t.d. ekki 22

x

Kristilegt skólablað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kristilegt skólablað
https://timarit.is/publication/2034

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.